Skip to content
Íslenska - Ísland
  • There are no suggestions because the search field is empty.

Úrlausn er nú þegar uppsett í snjallúrinu

Af hverju get ég ekki klárað uppsetninguna?

Það lítur út fyrir að Úrlausn sé nú þegar uppsett í snjallúrinu þínu.

Ef Úrlausn virkar í úrinu þarftu ekki að setja hana upp aftur. Annars geturðu prófað að fjarlægja eldri uppsetninguna og byrja upp á nýtt.

Hvernig laga ég þetta?

Apple Watch:

  1. Opnaðu Watch appið í iPhone.
  2. Veldu My Watch → Mobile Data.
  3. Ýttu á upplýsingatáknið (ⓘ) við farsímaáskriftina.
  4. Veldu Remove Nova Plan.
  5. Endurræstu úrið og reyndu að setja upp Úrlausn aftur.

Samsung Galaxy Watch:

  1. Opnaðu Galaxy Wearable appið.
  2. Veldu Watch settings → Mobile plans.
  3. Fjarlægðu eldri farsímaáskriftina.
  4. Endurræstu úrið og reyndu aftur.

Ef vandamálið kemur upp aftur skaltu hafa samband við okkur og við hjálpum þér.