Annað snjallúr er nú þegar tengt símanúmerinu
Af hverju get ég ekki tengt nýtt snjallúr?
Símanúmerið þitt er nú þegar tengt öðru snjallúri með Úrlausn. Til að tengja nýtt úr þarftu fyrst að fjarlægja tenginguna við gamla úrið.
Hvernig laga ég þetta?
Ef þú ert með Apple Watch:
- Opnaðu Watch appið í iPhone.
- Veldu My Watch → Mobile Data.
- Ýttu á upplýsingatáknið (ⓘ) við farsímaáskriftina.
- Veldu Remove Nova Plan.
- Reyndu aftur að tengja nýja úrið.
Ef þú ert með Samsung Galaxy Watch:
- Opnaðu Galaxy Wearable appið í símanum.
- Veldu Watch settings → Mobile plans.
- Veldu farsímaáskriftina og fjarlægðu hana.
- Reyndu aftur að tengja nýja úrið.
Ef þú færð enn sömu villu gæti þurft að aftengja gömlu Úrlausnina hjá Nova. Hafðu þá samband við okkur á netspjallinu.