Greinar um þetta efni

Hvernig á að virkja gestanet á 5G-router frá Nova

Þessi leiðarvísir sýnir hvernig þú getur virkjað gestanet á 5G-router sem keyptur er hjá Nova. Gestanet er sér net sem gestir geta tengst án þess að fá aðgang að þínu einkaneti.

Skref 1: Tengjast router og opna stjórnborð

  1. Tengstu WiFi neti routerins eða notaðu netkapal.

  2. Opnaðu vafra og sláðu inn IP-töluna 192.168.8.1 í leitarstikuna.

  3. Skráðu þig inn með notendanafni og lykilorði (sjá aftan á routernum ef þeim hefur ekki verið breytt).


Skref 2: Virkja gestanet

  1. Farðu í flipann “Wi-Fi Settings” eða “Wi-Fi”.

  2. Veldu “Guest Network”.

  3. Hakaðu við “Enable” eða “Turn On Guest Network”.

  4. Gefðu gestanetinu nafn (SSID) og veldu öflugt lykilorð.

  5. Vistaðu stillingarnar.

 

mceclip0.png

 

Var þessi grein gagnleg?
1 af 4 fannst þessi grein gagnleg