Hvað kostar að nota Net í útlöndum?
Net í útlöndum er í boði í völdum löndum og fer verð pakkans eftir því í hvaða landi þú ert staddur. Löndunum er skipt í mismunandi verðflokka og því getur til dæmis verið annað verð fyrir netnotkun í Bandaríkjunum en í Mexíkó.
Þú getur skoðað í hvaða löndum Net í útlöndum er í boði og hvað pakkarnir kosta.
Hvernig virka pakkarnir?
Í löndum þar sem Net í útlöndum er í boði virkjast 500 MB netpakki sjálfkrafa þegar þú byrjar að nota netið. Pakkinn gildir í 24 klukkustundir og stækkar sjálfkrafa í næstu stærð ef þú notar meira gagnamagn. Þú færð SMS áður en pakkinn stækkar.
Í löndum þar sem Net í útlöndum er ekki í boði virkjast enginn netpakki og netnotkun er gjaldfærð samkvæmt almennri verðskrá.
Hvað gerist ef ég nota mikið gagnamagn?
Til að koma í veg fyrir óvæntan kostnað er sjálfkrafa lokað fyrir frekari netnotkun þegar ákveðnu gagnamagni er náð.
Þú færð SMS áður en lokað er fyrir netnotkun.
Viltu halda áfram að nota netið? Þá geturðu farið í Stólinn og smellt á lásinn undir gagnamagninu til að opna fyrir frekari netnotkun þann daginn.
Ef þú velur að opna ekki fyrir frekari notkun rennur pakkinn út að 24 klukkustundum liðnum. Eftir það getur nýr 500 MB pakki virkjast þegar þú notar netið aftur, svo framarlega sem þú ert í landi þar sem Net í útlöndum er í boði.

Á nova.is geta viðskiptavinir leitað að sínu landi og séð kostnað við notkun.