Með 3CX í farsímanum er hægt að vinna hvar sem er svo lengi sem þú ert með net! Þetta er stutt og þægilegt uppsetningarferli. Sækja, skanna, spjalla.
Hér eru leiðbeiningar fyrir bæði iPhone og Android!
-
Sækja 3CX appið.
Farðu í vefverslun símans, eða veldu App Store fyrir iOS og Google Store fyrir Android.
Sæktu appið og kláraðu niðurhalið. -
Skannaðu kóðann.
Þú ættir að vera búin að skrá þig inná 3CX kerfið þitt. Þar ættirðu að hafa fengið QR kóðann til að skanna í appinu.
Ef það fór framhjá þér ferðu einfaldlega inná 3CX í tölvunni.
Smellir á QR kóðann uppi í hægra horninu, merktann í rauðum reit hér að neðan.
Þá færðu þennann glugga upp, skannaðu nú QR kóðann! - Spjalla!
Prófaðu að hringja og láttu okkur vita ef þú stoppar einhversstaðar í skrefinu á taeknihjalp@nova.is eða 5191100 😄