Skip to content
Íslenska - Ísland
  • There are no suggestions because the search field is empty.

Bilanagreining: Ljósleiðaratengingar

Er netið til vandræða?

Ef þú nærð engu sambandi við netið eða ert að lenda í vandræðum með hraðann byrjum við á að:

Endurræsa bæði ljósleiðaraboxinu og ráternum, með því að taka bæði tækin úr sambandi við rafmagn, bíða í 10 sekúndur og stinga þeim aftur í samband.

Ef að það lagar ekki vandamálið getur þú skoðað ljósin á ljósleiðaraboxinu þínu.

Smelltu hér til að sjá hvað ljósin á ljósleiðaraboxinu þínu merkja.

Ef að ljósin á ljósleiðaraboxinu eru eðlileg þá snúum við okkur að ráternum.

Byrjum á að skoða ljósin á ráternum, þau geta sagt okkur til um hvert vandamálið er.

Smelltu hér til að fara í bilanagreiningu á þínum ráter

Veldu þinn ráter

Huawei DG8245W2

Hvað merkja ljósin?

dg8ljos.png

Hvernig laga ég WiFi vandamál?

Er slökkt á WiFi?

WLAN ljósið merkir þráðlausa netið, ef að það er slökkt þá er ekkert þráðlaust samband á ráternum. Á vinstri bakhlið rátersins er WLAN takki sem þú getur ýtt á til að kveikja á þráðlausa sambandinu.

Ert þú að nýta þér *VPN* þjónustur?

VPN (Virtual Private Network) þjónustur eru verkfæri sem búa til örugga og dulritaða tengingu milli tækisins þíns og internetsins á kostnað hraða og svartíma. VPN gerir þér einnig kleift að breyta staðsetningu þinni á netinu til að fá aðgang að efni sem kann að vera takmarkað á þínu svæði.

Slíkar þjónustur geta haft mikil áhrif á gæði og hraða tengingarinnar, bæði þráðlaust og beintengt. Prófaðu að slökkva á VPN þjónustunni, og athugaðu hvort að sambandið verði betra.

Hvar er ráterinn staðsettur?

Besta staðsetningin fyrir ráterinn er í meðalhæð, miðsvæðis í opnu rými. Það þýðir að ef ráterinn þinn er lokaður inni í skáp eða innan um þunga hluti þarft þú að skoða það að færa hann fyrir betra samband. Þú getur líka skoðað WiFi kastara frá Nova!

Ert þú með tengt í gegnum lagnir?

Ef svo er - prófaðu að tengja framhjá þeim með snúru beint úr ljósleiðaraboxinu í ráter. Snúran fer úr tengi 1 á ljósleiðaraboxinu yfir í bláa *WAN* tengið á ráter. Ef að sambandið lagast við það að tengja framhjá lagnaleiðinni, þá gæti þurft að athuga snúrurnar í lagnaleiðinni.

Hvað heitir netið sem þú tengist?

Ráterinn býður upp tvö net (tvær tíðnir), 2.4ghz og 5.0ghz. T.d Huawei-Abcd og Huawei-Abcd\_ac, en netið sem endar á ac er 5.0ghz og sú fyrri er 2.4ghz.

2.4 tíðnin er langdrægnari en hægari á meðan 5ghz (ac) tíðnin dregur styttra en er með hraðara net.

Við mælum með því að nota alltaf 5ghz tíðnina fyrir bestu upplifunina. Ef að ráterinn þinn á erfitt með að dreifa 5ghz merkinu um allt rýmið mælum við með að fá kastara frá Nova til að dreifa merkinu í alla króka og kima heimilisins.

Ekkert Internet?

Ekkert Power ljós: Slökkt á ráternum eða hann er ekki að fá straum

  • Er kveikt á ráternum? (On/Off takki að aftan).
  • Taktu straumbreytinn úr ljósleiðaraboxinu og settu í ráterinn, ef ráterinn fer í gang við það getur þú komið í Lágmúla 9 og fengið nýjan straumbreyti fyrir ráterinn. Passaðu að færa straumbreytinn aftur í rétt tæki.
  • Ef straumbreytir fyrir ljósleiðarann virkar ekki þarft þú að prófa aðra innstungu/fjöltengi.
  • Prófaðu hvort annað tæki virki í sömu innstungu (t.d hleðslutæki fyrir síma) ef straumbreytirinn fyrir ljósleiðarann virkar ekki.

Ef ekkert af ofantöldu virkar, þarf að skipta út ráternum.

Ekkert WAN ljós: Ráterinn nær ekki sambandi við ljósleiðaraboxið

  • Endurræstu ráterinn og ljósleiðaraboxið.
  • Fer snúran úr *WAN* (bláa tengið) í tengi númer 1 á ljósleiðaraboxinu? Ef svo er mælum við með að prófa að færa í port númer 2, ef það virkar ekki þarftu að prófa nýja netsnúru.
  • Tengdu ráterinn beint í ljósleiðaraboxið ef hann er tengdur í gegnum vegglagnir til þess að útiloka að lagnirnar séu vandamálið. Tengdu framhjá lögnunum og beint í boxið.
  • Er í lagi með ljósleiðaraboxið? Sjá bilanagreiningu á ljósleiðara boxum hér.

Ekkert Internet ljós: Ráterinn er ekki með netsamband

  • Endurræstu ráterinn.
  • Prófaðu aðra netsnúru.
  • Tengdu ráterinn beint í ljósleiðarabox ef hann er tengdur í gegnum vegg lagnir.

Ert þú með tengt í gegnum lagnir?

Ef svo er - prófaðu að tengja framhjá þeim með snúru beint úr ljósleiðaraboxinu í ráter. Snúran fer úr tengi 1 á ljósleiðaraboxinu yfir í bláa *WAN* tengið á ráter. Ef að sambandið lagast við það að tengja framhjá lagnaleiðinni, þá gæti þurft að athuga snúrurnar í lagnaleiðinni.

Huawei V564

v564-wifi6.png

Hvað merkja ljósin?

Huawei V564 ráterinn er mjög einfaldur í notkun. Eingöngu er eitt ljós á honum og það logar ýmist hvítt eða rautt.

Hvítt - netið er virkt

Rautt - netið er ekki virkt

Hvernig laga ég WiFi vandamál?

Ert þú að nýta þér *VPN* þjónustur?

VPN (Virtual Private Network) þjónustur eru verkfæri sem búa til örugga og dulritaða tengingu milli tækisins þíns og internetsins á kostnað hraða og svartíma. VPN gerir þér einnig kleift að breyta staðsetningu þinni á netinu til að fá aðgang að efni sem kann að vera takmarkað á þínu svæði.

Slíkar þjónustur geta haft mikil áhrif á gæði og hraða tengingarinnar, bæði þráðlaust og beintengt. Prófaðu að slökkva á VPN þjónustunni, og athugaðu hvort að sambandið verði betra.

Hvar er ráterinn staðsettur?

Besta staðsetningin fyrir ráterinn er í meðalhæð, miðsvæðis í opnu rými. Það þýðir að ef ráterinn þinn er lokaður inni í skáp eða innan um þunga hluti þarft þú að skoða það að færa hann fyrir betra samband. Þú getur líka skoðað WiFi kastara frá Nova!

Ert þú með tengt í gegnum lagnir?

Ef svo er - prófaðu að tengja framhjá þeim með snúru beint úr ljósleiðaraboxinu í ráter. Snúran fer úr tengi 1 á ljósleiðaraboxinu yfir í bláa *WAN* tengið á ráter. Ef að sambandið lagast við það að tengja framhjá lagnaleiðinni, þá gæti þurft að athuga snúrurnar í lagnaleiðinni.

Ekkert internet?

  • Er kveikt á ráternum? (On/Off takki að aftan).
  • Taktu straumbreytinn úr ljósleiðaraboxinu og settu í ráterinn, ef ráterinn fer í gang við það getur þú komið í Lágmúla 9 og fengið nýjan straumbreyti fyrir ráterinn. Passaðu að færa straumbreytinn aftur í rétt tæki.
  • Ef straumbreytir fyrir ljósleiðarann virkar ekki þarft þú að prófa aðra innstungu/fjöltengi.
  • Er lokað fyrir þjónustuna á stólnum?
  • Endurræstu ráterinn.
  • Prófaðu aðra netsnúru.
  • Tengdu ráterinn beint í ljósleiðarabox ef hann er tengdur í gegnum vegg lagnir.
  • Fer snúran úr *WAN* (bláa tengið) í tengi númer 1 á ljósleiðaraboxinu? Ef svo er mælum við með að prófa að færa í port númer 2, ef það virkar ekki þarftu að prófa nýja netsnúru.
  • Tengdu ráterinn beint í ljósleiðaraboxið ef hann er tengdur í gegnum vegglagnir til þess að útiloka að lagnirnar séu vandamálið. Tengdu framhjá lögnunum og beint í boxið.
  • Er í lagi með ljósleiðaraboxið? Sjá bilanagreiningu á ljósleiðara boxum hér.

Huawei F50

rear.png

Ljósin eru aftan á ráternum. Ef að það loga enginn ljós aftaná honum þá er takki hægra meginn sem heitir "LED" sem kveikir og slekkur á þeim ljósum.

Hvað merkja ljósin?

Hvernig laga ég WiFi vandamál?

Er slökkt á WiFi?

WLAN ljósið merkir þráðlausa netið, ef að það er slökkt þá er ekkert þráðlaust samband á ráternum. Á hægri bakhlið rátersins er WLAN takki sem þú getur ýtt á til að kveikja á þráðlausa sambandinu.

Ert þú að nýta þér *VPN* þjónustur?

VPN (Virtual Private Network) þjónustur eru verkfæri sem búa til örugga og dulritaða tengingu milli tækisins þíns og internetsins á kostnað hraða og svartíma. VPN gerir þér einnig kleift að breyta staðsetningu þinni á netinu til að fá aðgang að efni sem kann að vera takmarkað á þínu svæði.

Slíkar þjónustur geta haft mikil áhrif á gæði og hraða tengingarinnar, bæði þráðlaust og beintengt. Prófaðu að slökkva á VPN þjónustunni, og athugaðu hvort að sambandið verði betra.

Hvar er ráterinn staðsettur?

Besta staðsetningin fyrir ráterinn er í meðalhæð, miðsvæðis í opnu rými. Það þýðir að ef ráterinn þinn er lokaður inni í skáp eða innan um þunga hluti þarft þú að skoða það að færa hann fyrir betra samband. Þú getur líka skoðað WiFi kastara frá Nova!

Ert þú með tengt í gegnum lagnir?

Ef svo er - prófaðu að tengja framhjá þeim með snúru beint úr ljósleiðaraboxinu í ráter. Snúran fer úr tengi 1 á ljósleiðaraboxinu yfir í 1-2.5GE portið á ráter. Ef að sambandið lagast við það að tengja framhjá lagnaleiðinni, þá gæti þurft að athuga snúrurnar í lagnaleiðinni.

Á hvaða tíðni eru tækin tengd?

Ráterinn býður upp á tvær tíðnir, 2.4ghz og 5.0ghz (5g). 2.4 tíðnin er langdrægnari en hægari á meðan 5ghz (5g) tíðnin dregur styttra en er með hraðara net.

Við mælum með því að nota alltaf 5ghz tíðnina fyrir bestu upplifunina. Ef að ráterinn þinn á erfitt með að dreifa 5ghz merkinu um allt rýmið mælum við með að fá kastara frá Nova til að dreifa merkinu í alla króka og kima heimilisins.

Ekkert internet?

Ekkert Power ljós: Slökkt á ráternum eða hann er ekki að fá straum

  • Er kveikt á ráternum? (On/Off takki að aftan). Ef að það er kveikt á ráternum á að koma ljós á frammhliðinni á honum.
  • Taktu straumbreytinn úr ljósleiðaraboxinu og settu í ráterinn, ef ráterinn fer í gang við það getur þú komið í Lágmúla 9 og fengið nýjan straumbreyti fyrir ráterinn. Passaðu að færa straumbreytinn aftur í rétt tæki.
  • Ef straumbreytir fyrir ljósleiðarann virkar ekki þarft þú að prófa aðra innstungu/fjöltengi.
  • Prófaðu hvort annað tæki virki í sömu innstungu (t.d hleðslutæki fyrir síma) ef straumbreytirinn fyrir ljósleiðarann virkar ekki.

Ef ekkert af ofantöldu virkar, þarf að skipta út ráternum.

Ert þú með tengt í gegnum lagnir?

Ef svo er - prófaðu að tengja framhjá þeim með snúru beint úr ljósleiðaraboxinu í ráter. Snúran fer úr tengi 1 á ljósleiðaraboxinu yfir í 1-2.5GE portið á ráter. Ef að sambandið lagast við það að tengja framhjá lagnaleiðinni, þá gæti þurft að athuga snúrurnar í lagnaleiðinni.

Ekkert PON ljós

  • Ef að það er ekkert PON ljós þá þarf að athuga tenginguna á milli ráters og ljósleiðaraboxins.
  • Er ekki örugglega tengt frá 1-2.5GE portinu og í port 1 á ljósleiðaraboxinu.
  • Er í lagi með ljósleiðaraboxið? Sjá bilanagreiningu á ljósleiðaraboxum hér.

Kveikt á LOS eða blikkar

Nokia Beacon G6

Hvað merkja ljósin?

Hvernig get ég lagað WiFi vandamál?

Er slökkt á WiFi?

  • Haltu inni WLAN takkanum aftan á ráternum í 3-4 sek.
  • Endurræstu ráterinn.
  • Prufaðu aðra snúru frá ljósleiðaranum og í ráterinn.