NovaTV appið er í boði fyrir Apple TV (leita að Nova TV), Android TV (leitar að Nova TV sjónvarp), iOS notendur í App Store, Android notendur í Play Store og á novatv.is í vafra.
Þegar þú hefur sótt appið smellir þú á efni til að horfa á og færð upp skráningarglugga.
Ef þú ert nýr notandi ferðu í gegnum nýskráningu, skráir þig inn með rafrænum skilríkjum, tölvupóst eða SMS og setur upp aðganginn þinn og þá getur þú byrjað að glápa.
Ef þú átt nú þegar NovaTV aðgang velur þú innskráningu, skráir þig inn með rafrænum skilríkjum í farsíma eða aðgangskóðanum í snjalltækinu í sjónvarpinu þínu og byrjar að glápa.