Greiðandi númersins getur breytt um notanda númersins með því að koma í verslun eða heyra í okkur á netspjallinu eða í þjónustuveri í síma 519 1919.
Rétthafi er eigandi númersins og jafnframt greiðandi þess. Til að skipta um rétthafa þarf núverandi rétthafi að samþykkja, sem og verðandi rétthafi. Heyrðu í okkur á netspjallinu eða í 519 1919 og við klárum málið saman.