Það er ýmislegt sem getur haft áhrif á beininn þinn:
- Beinar vilja helst ekki vera í skápum. Best er að geyma þá í mannhæð og í miðri íbúð (eða mitt á milli staðana þar sem þú notar netið).
- 5GHz tíðnin (AC) er mun hraðari en 2,4GHz, en nær ekki eins langt. Skiptu í 2,4GHz ef þú ert með lélegt merki, eða bættu við þráðlausum punkti.
- Málmar, eins og járnabindingar í burðarveggjum eða klæðningar, éta upp þráðlaust net. Best er að forðast þá, annað hvort með betri staðsetningu eða með því að bæta við þráðlausum punkti til að koma merki fram hjá hindrun.
- Önnur tæki sem senda frá sér bylgjur geta haft áhrif á beininn (heimasímar, örbylgjuofnar og fleira). Sum heimili eru bara of stór. Einn beinir getur sinnt um 100 fermetra íbúð nokkuð vel. Allt yfir það, eða önnur hæð, gerir allt mun erfiðra fyrir þennan eina beini. Bættu við þráðlausum punkti á seinni hæðina og það bjarga þér.
- Beinirinn getur verið orðinn of gamall. Fjögurra ára beinir telst því miður vera orðinn rígfullorðinn.
Við mælum alltaf með að tengja þráðlausa punkta með snúru en ekki þráðlaust. Endurvarp á lélegu merki verður áfram lélegt.