Í þessari grein förum við yfir hvernig við kveikjum á Data Roaming, APN stillingum og tíðnir skoðaðar í Hnetu/4G/4.5G búnaði i gegnum gamla viðmótið.
Ef ferðast er erlendis með Hnetu/4G ráter mælum við með því að þú kynnir þér þessa grein líka til þess að komast í samband við umheiminn, smelltu hér
Ef þú ert með nýja viðmótið, smelltu hér
Til þess að komast inn á stillingarsíðu routersins þarft þú að tengja helst spjald eða tölvu við hnetuna/4G routerinn með notendanafni og lykilorði (það er að finna á límmiða á búnaðinum). Því næst slærðu 192.168.8.1 inn í vafra. Þú þarft að skrá þig inná búnaðinn með notandanafni og lykilorði í gegnum log in í hægra horninu.
Notendanafn: admin
Lykilorð: admin (ef þú ert að skrá þig inn í fyrsta skipti).
Ef þú hefur breytt lykilorðinu skráir þú þig inn með því lykilorði. Ef þú ert að skrá þig inná routerinn í fyrsta skipti, ýttu þá hér.
Til þess að kveikja á Data Roaming smellir þú á Settings í gráu stikunni, velur svo Dial-up í felliglugganum og smellir á Connect. Þú þarft að hafa kveikt á bæði Mobile data og Data Roaming þegar ferðast er erlendis. Ef breytingar eru gerðar velur þú Apply. Mikilvægt er að endurræsa bæði Hnetu/4G ráter, síma og önnur tæki þegar átt er við stillingar inn á routernum.
Sjá meðfylgjandi mynd:
Það þarf einnig að athuga hvort APN stillingar séu ekki örugglega réttar. Á öllum netþjónustum viljum við sjá APN stillingarnar internet.nova.is. Til þess að skoða APN stillingar smellir þú á Settings í gráu stikunni, velur Dial Up í felliglugganum og smellir á Profile Management. Þar getur þú séð hvort APN stillingar séu réttar eða ekki. Ef þær eru ekki réttar velur þú New profile. Profile Name er Nova net og APN er: internet.nova.is og vistar.
Sjá meðfylgjandi mynd:
Þar sem búið er að kveikja á Data Roaming og APN stillingar eru nú réttar er ekkert því til fyrirstöðu að kíkja hvort það sé ekki örugglega kveikt á báðum nettíðnum. Næst smellir þú á Settings í gráu stikunni, velur WLAN í felliglugganum og smellir á WLAN Basic Settings. Þar getur þú kveikt og slökkt á 2,4Ghz eða 5Ghz (ac) þráðlausa netinu.
Sjá meðfylgjandi mynd:
Prófaðu að endurræsa búnaðinn núna og reyndu að tengjast.
Átt þú ennþá í vandræðum með að tengjast?
Tækin tengd inn á routerinn með notendanafni og lykilorði og búið að endurræsa öll tæki?
Heyrðu þá endilega í okkur á netspjallinu á nova.is og við græjum þetta saman.