Innifalið í AlltSaman er ótakmarkað, net, símtöl og SMS á Íslandi og 9 GB netnotkun innan EES á hverju farsímanúmeri. Einnig er allt innifalið sem þú þarft fyrir heimanetið, aðgangsgjald og leiga á ráter er innifalin. Eitt verð fyrir AlltSaman!
Greitt er sérstaklega fyrir farsímanotkun á ferðalögum utan Evrópu (EES), gott er að kynna sér verðskrá landsins áður en haldið er af stað og í þeim löndum sem Ferðapakkinn gildir í mælum við með honum! Símtöl til útlanda og símtöl í þjónustunúmer (t.d. upplýsingaveitur, styrktarnúmer eða Eurovision) er einnig greitt fyrir aukalega. Slepptu óþarfa eins og að hringja í upplýsingaveitur og símtöl til útlanda, þú getur gert það ókeypis á netinu, það er ótakmarkað!
Greitt er fyrir Ferðapakka og símtöl til útlanda í lok dags á þeim degi sem notkun á sér stað svo þú veist nákvæmlega hvað þú ert að nota. Engir óvæntir reikningar!
Í Stólnum getur greiðandi að AlltSaman opnað á símtöl til útlanda og skráð númer í Útlandapakkann. Greitt er fyrir notkun vegna símtala til útlanda í lok dags. Útlandapakkinn er greiddur 1. hvers mánaðar og gildir í mánuð. Ef númer er skráð í Útlandapakkann annan dag en 1. er greiðslan hlutfölluð fyrir þann mánuð.
Í Stólnum á nova.is eða í Nova appinu getur greiðandi AlltSaman leyft eða lokað fyrir aukakostnað í stillingum allra númera sem eru í pakkanum hans.