Þú getur notað símann þinn innan Evrópu (EES) þegar þú ert að ferðast erlendis og þá er notkun rukkuð samkvæmt reglugerð EU um “Roam like at home”. Ef notkun erlendis verður varanleg er rukkað álag fyrir símtöl og SMS. Það er ekki rukkað álag á netnotkun svo þú getur notað EES gagnamagnið þitt eins og áður.
Varanlegt reiki eða varanleg notkun telst þegar notkun erlendis (EES) síðustu fjóra mánuði er meiri en á Íslandi. Við sendum SMS til að upplýsa þegar slík rukkun hefst.
SMS er sent á alla þá sem fara í varanlegt reiki:
SMS: Kæri ferðalangur, ertu ekkert á leiðinni heim? Innifalin notkun í Evrópu (EES) miðast við tímabundna notkun en miðað við þína notkun er dvöl þín ekki lengur tímabundin og greiðir þú því samkvæmt verðskrá. Sjá nánar hér: https://www.nova.is/farsimi/reiki-i-evropu
*Öll óskráð frelsi hjá Nova eru í varanlegu reiki í Evrópu þó þau séu ekki með meiri notkun erlendis síðustu 4 mánuði. Þetta er gert til að koma í veg fyrir svik. Með því að skrá númerið á kennitölu kemur þú í veg fyrir þetta.
Notkunin núllast ekki við það að koma heim en þú greiðir einungis álag vegna varanlegs reikis þegar þú ert stödd/staddur erlendis, svo þetta hefur ekki áhrif þegar númerið er notað hérlendis.
Ef notkun þín er meiri erlendis heldur en hér á Íslandi siðustu 4 mánuði ertu í varanlegu reiki. Ef það er langt í að þú farir út aftur mun varanlega reikið ganga til baka þegar notkunin heima er orðin meiri en notkunin erlendis. Það er sjálfvirk keyrsla daglega sem athugar það.
Varanlegt reiki og ferðapakki
Varanlegt reiki hefur einungis áhrif á innifalda notkun þjónustuleiðarinnar þinnar í Evrópu (EES).
Þar sem löndin í ferðapakka eru ekki þau sömu og eru í Roam like home í Evrópu (EES) hefur það ekki áhrif á það hvernig þú greiðir fyrir ferðapakkann!
Skoðaðu lönd sem eru innifalin í ferðapakkanum hér.