Vinatónn er tónlist sem vinir þínir heyra þegar þeir hringja í þig. Þú getur valið þinn eigin Vinatón eða slökkt á þjónustunni ef þú vilt heyra hefðbundna hringitóna.
Vinatónar eru aðgengilegir í Nova appinu: nova.is/appid). Eina sem þú þarft að gera er að skrá þig inn í appið með rafrænum skilríkjum, Auðkennisappinu eða SMS. Í Nova appinu og undir Baksviðs sérð þú Vinatónar.
Undir Vinatónar getur þú svo valið þinn Vinatón, tekið Vinatón af eða skipt um Vinatón. Þar getur þú einnig skoðað og leitað að Vinatónum eða fengið hugmyndir með því að filtera eftir tímabilum og tegund tóns.
Hækkaðu í tónlistinni á stærsta skemmtistað í heimi!