Ef þú klórar þér einhverntíman í hausnum yfir reikningamálum þá er hér smá útskýring á því hvernig reikningamálum er háttað hjá Nova.
Þú finnur reikninga frá Nova í Stólnum á nova.is eða í Nova appinu, en reikningar Nova eru nefnilega ekki aðgengilegir í rafrænum skjölum í heimabanka. Þú getur svo valið um að fá reikning sendan í heimabanka eða skuldfærðan af kreditkorti. Þú bara ræður!
Reikningatímabilið
Reikningatímabilið er frá fyrsta degi til síðasta dags hvers mánaðar. Nova miðar við að hafa reikninga tilbúna um miðjan mánuð, en það þýðir að þú færð júní reikninginn um miðjan júlí.
Um leið og reikningar eru klárir er skuldfært á kreditkort hjá þeim sem kjósa þá leið. Ef ekki tekst að skuldfæra kort, þá sendum við kröfu í heimabanka á kennitölu rétthafa númers.
Gjalddagar og eindagar
Gjalddagi reikninga er viku fyrir eindaga.
Eindagi á reikningum er alltaf annan virka dag í mánuði.
Eftir eindaga leggjast dráttarvextir ofan á reikning sem reiknaðir eru frá gjalddaga til greiðsludags.
Lokað er fyrir farsímaþjónustu 30 dögum eftir eindaga.
Þá ættir þú vonandi að vera aðeins nær því að skilja allt reikningastandið.