Skil á vöru
Keyptirðu græju hjá Nova en hættir við? Ekkert mál! Hér finnurðu allt sem þú þarft að vita um vöruskil hjá okkur.
Hvað er skilarétturinn langur?
Hjá Nova bjóðum við 30 daga skilarétt frá afhendingu vöru, hvort sem þú verslar í verslun eða á nova.is.Þú mátt opna og prófa flestar vörur, en við vöruskil þurfa þær að vera:
- Í góðu og söluhæfu ástandi.
- Í upprunalegum umbúðum.
- Með öllum fylgihlutum sem fylgdu við kaup.
Hvaða vörur bera takmarkaðan skilarétt?
Sumar vörur bera takmarkaðan 30 daga skilarétt. Það þýðir að aðeins er hægt að skila þeim samkvæmt viðbótarskilarétti Nova ef þær eru ónotaðar og í óopnuðum, innsigluðum umbúðum.Þetta á við um:- Farsíma
- Leikjatölvur, svo sem PlayStation og Nintendo
- Tölvuleiki