Til að fá sem mest út úr kastaranum skiptir staðsetningin öllu.
Þetta eru engir galdrar 🪄 – bara pjúra vísindi 🔬
Kastarinn býr EKKI til nýtt Wi-Fi-merki úr engu. Hann tekur merkið frá routernum, magnar það upp og endurvarpar því, eða framlengir því áfram. Þess vegna er þetta oft kallað extender.
Ímyndið ykkur routerinn sem vasaljós og kastarann sem spegil:
- Ef spegillinn er inn í herbergi sem er nú þegar í myrkri, þá gerist ekkert – hann fær ekkert ljós.
- Ef spegillinn er úti á gangi og vasaljósið lýsir á hann, þá getur hann varpað ljósinu inn í herbergið.
Það er nákvæmlega þannig sem kastarinn virkar.
- Ef hann fær gott merki frá routernum → sendir hann gott merki frá sér.
- Ef hann fær lélegt merki frá routernum → sendir hann lélegt merki frá sér.
Þannig að ef kastari „virkar ekki“ er klassískt fyrsta skref að færa hann nær routernum, ekki nær tækinu sem er í veseni.