Greinar um þetta efni

HBO Max hjá Nova

HBO Max er streymisveita sem býður upp á mergjað úrval af allskonar efni til þess að hámhorfa eins og þér lystir. Ef þú ert með Sjónvarp Símans Premium hjá Nova, þá er HBO Standard aðgangur innifalinn — og þú getur virkjað hann á nokkrum mínútum.

Langar þig í áskrift?

Þú getur græjað hana á Nova.is

Virkjun – ef þú ert nú þegar með HBO Max aðgang

Skráðu þig inn

Smelltu hér og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.

Sláðu inn netfangið

Settu inn sama netfang og tengt er við núverandi HBO Max aðganginn þinn.

Pörunarkóði

Þú færð pörunarkóða í tölvupósti — sláðu hann inn og staðfestu tenginguna.

Erlendar HBO Max áskriftir

Þú getur ekki tengt HBO Max áskrift frá öðrum heimshluta við Sjónvarp Símans Premium. Hafðu samband við þjónustuver HBO til að færa aðganginn þinn á réttan heimshluta eða stofnaðu nýjan HBO Max aðgang á öðru netfangi til að tengja hann við Sjónvarp Símans Premium.

Virkjun – ef þú hefur aldrei verið með HBO Max áður

Skráðu þig inn

Smelltu hér og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.

Veldu netfang

Settu inn netfangið sem þú vilt nota fyrir HBO Max aðganginn þinn.

Stofnaðu aðgang

Fylltu inn umbeðnar upplýsingar — HBO Max aðgangurinn þinn verður tilbúinn þegar lokið er.

Byrjaðu hámhorfið!

Smelltu á Start Streaming og byrjaðu að horfa.

 

Algengar spurningar

Ég man ekki HBO Max netfangið eða lykilorð

Hægt er að endurheimta þau á aðstoðarsíðum HBO Max.

Get ég verið með fleiri en eina HBO Max áskrift?

Nei, aðeins ein áskrift er leyfð per kennitölu.

Hvernig hleð ég niður efni?

Finndu titilinn í appinu og ýttu á niðurhalsmerkið. Ef það birtist ekki er niðurhal ekki í boði fyrir viðkomandi efni.

Vandamál með afspilun?

Lausnir er að finna á aðstoðarsíðum HBO Max.

Erlendar HBO Max áskriftir

Ekki er hægt að tengja erlendar áskriftir við Sjónvarp Símans Premium. Hafðu samband við HBO eða stofnaðu nýjan aðgang með öðru netfangi.

Ég man ekki netfangið eða lykilorðið inn á HBO Max aðganginn minn

Sjá hér viðeigandi grein á HBO Max Help Center. Þar getur þú einnig haft beint samband

við þjónustuver HBO.

HBO Max appið er til vandræða hjá mér

Sjá hér viðeigandi grein á HBO Max Help Center. Þar getur þú einnig haft beint samband

við þjónustuver HBO.

Ég virkjaði HBO Max aðganginn minn en man ekki hvaða netfang ég notaði

Þú getur leitað að staðfestingarpóstinum í pósthólfinu þínu.

Ég er með virkjaðan HBO Max aðgang, en ég skrái mig inn er eins og ég sé ekki með áskrift

Heyrðu í okkur á netspjallinu og við finnum út úr því saman.

 

 

Var þessi grein gagnleg?
2 af 4 fannst þessi grein gagnleg