Greinar um þetta efni

Sjálfvirk endurræsing á 5g ráterum

Sjálfvirk slökkvun í HUAWEI CPE 5g ráterum stafar yfirleitt af forritanlegum Wi-Fi tímastillingu eða áætlaðri endurræsingu (scheduled wifi reboot) sem hægt er að slökkva á í AI Life appinu eða á vefviðmóti routersins með því að skrá sig inn á ip töluna. 

Slökkva á sjálfvirkri endurræsingu

Þú getur stjórnað stillingum ráterins með HUAWEI AI Life appinu eða í gegnum vafrastýringu (web management page).

Aðferð 1: Með AI Life appinu

  1. Tengdu símann við Wi-Fi net routersins.

  2. Opnaðu AI Life appið og veldu routerinn.

  3. Farðu í stillingar fyrir Wi-Fi tímasetningu (þær geta verið á mismunandi stað í appinu, t.d. Show more > Wi-Fi management > Wi-Fi off schedule).

  4. Slökktu á eða breyttu tímasetningunni.

Aðferð 2: Með vefstýringu (Web-based Management Page)

  1. Tengdu tæki við net routersins.

  2. Opnaðu vafra og sláðu inn IP-tölu routersins (venjulega á merkimiðanum á tækinu) til að fara á innskráningarsíðuna.

  3. Skráðu þig inn.

  4. Finndu Wi-Fi tímastillingar (oft undir „More Functions > Wi-Fi Settings“) og slökktu á þeim.

  5. Leitaðu einnig að „Router Reboot Timer“ í kerfis- eða viðhaldshlutum og slökktu á honum ef þarf.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 2 fannst þessi grein gagnleg