Það er í mörg horn að líta þegar þú ert með í útlöndum og símasamband er klárlega eitt af þeim. Í þessari grein förum við yfir hvernig þú kemst í samband við umheiminn erlendis með Samsung/Android.
Ef þú ert með iPhone, smelltu hér
Það er misjafnt hvað það kostar að nota símann í útlöndum og það fer algjörlega eftir því hvert þú ert að fara. Ef þú ert að ferðast innan EES þá ertu með innifalið gagnamagn, en það er mismunandi eftir áfyllingum. Þú getur skoðað hvað þú ert með með mikið gagnamagn innifalið í Stólnum í Nova appinu og auðvitað í verðskránni. Ef þú ert að ferðast utan EES þá gæti Ferðapakkinn verið tilvalinn fyrir þig.
Þegar búið er að ganga úr skugga um að þú sért í þjónustuleið miðað við það land sem þú ert í skulum við vinda okkur í tæknitalið.
Byrjaðu á því að ganga úr skugga um að það sé opið á notkun erlendis á númerinu þínu. Þú getur farið í Nova appið, valið númerið sem er erlendis/er að fara erlendis, skrollað niður og undir Stillingar kveikt á "Notkun erlendis" og "Netið í símann erlendis".
Hvernig næ ég sambandi í útlöndum?
1. Kveiktu á Farsímagögnum/Mobile Data.
Til þess að kveikja þarft þú að fara inn í Stillingar - Tengingar - Gagnanotkun - Farsímagögn - kveikja.
2. Kveiktu á Gagnareiki/Data Roaming.
Til þess að kveikja þarft þú að fara inn í Stillingar - Tengingar - Farsímakerfi - Gagnareiki - kveikja.
3. Stilltu símann þannig að hann velji viðeigandi símkerfi sjálfur.
Til þess að stilla símann þannig að hann velji símkerfi sjálfur þarft þú að fara inn í Stillingar - Tengingar - Farsímakerfi - Símafyrirtæki - Velja sjálfkrafa.
Ef þú ert erlendis gætir þú þurft að endurræsa símann núna með slökkt á Flugstillingu/Airplane Mode og kveikt á Farsímagögnum, Gagnareiki og Sjálfkrafa val (athugaðu að þú gætir þurft að endurræsa símann 1x-2x með korters millibili ef síminn tengist ekki við fyrstu endurræsingu).
Ef síminn þinn tengist ekki inn á kerfi við endurræsingu höldum við áfram í næstu skref.
4. Stilltu símann þannig að þú getir valið símkerfi handvirkt.
Til þess að stilla símann þannig að hann velji símkerfi sjálfur þarft þú að fara inn í Stillingar - Tengingar - Farsímakerfi - Símafyrirtæki - slökkva á velja sjálfkrafa og velja símkerfi sem er í boði. Athugaðu að þú þarft svo að endurræsa símann.
5. Skoða gerð símkerfis.
Til þess að skoða gerð símkerfis þarft þú að fara inn í Stillingar - Tengingar - Farsímakerfi - Gerð Símkerfis - 5G/4G/3G/2G (sjálfvirk tenging).
6. Eru APN stillingar réttar?
Til þess að komast að því þarft þú að fara inn í Stillingar - Tengingar - Farsímakerfi - Heiti aðgansstaða - APN á að vera net.nova.is. Mikilvægt að endurræsa símann ef stillingum var breytt.
Er ennþá ekki komið samband?
7. Ert þú að ferðast með öðrum? hvernig virkar þjónustan hjá þeim? prófaðu að setja simkortið þitt í annan síma og/eða annað simkort í símann þinn (athugaðu að þú þarft að endurræsa símann þegar símkort eru flutt á milli tækja til þess að tengjast við kerfi). Þetta er gott trix ef að allt annað virðist klikka! Þetta getur sagt okkur nákvæmlega hvort að síminn eða simkortið sé vandamálið.
8. APN: Reset to default. Hægt er að prófa að endurstilla APN stillingarnar alveg og til þess að gera það þarft þú að fara inn í Stillingar – Tengingar -- Farsímakerfi – Heiti aðgansstaða -- Smella á 3 punktana upp í hægra horninu og velja Endurstilla á sjálfgildi. Mikilvægt að endurræsa símann.
9. Ef það er ekki ennþá komið neitt samband getur þú að lokum prófað Reset Network Settings. Til þess að endurstilla netstillingar þarft þú að fara inn í Stillingar/Settings – Backup & reset - Reset network settings - Reset settings - mögulega þarftu að setja inn lykilorðið þitt og velja reset settings aftur. Mikilvægt er að endurræsa símann ef hann gerir það ekki sjálfur. (Athugaðu að ef þú gerir Reset Network Settings þá þarft þú að skrá þig inn með lykilorði í öll öpp aftur og inn á allar nettengingar aftur, t.d heimanet, vinnunet osfr).
Ef ekkert að ofantöldu virkar þá er kominn tími til þess að hafa samband á netspjallinu á nova.is svo við getum græjað þetta með þér.
Kemstu á netið en getur ekki hringt eða móttekið símtöl/SMS?
Ert þú ekki örugglega að hringja með landskóða? Smelltu hér til þess að sjá hvaða landskóða þú þarft að nota. Muna þarf að setja 00 eða + fyrir framan.
Hvort ert þú í frelsi eða áskrift? Það er til dæmis ekki hægt að móttaka símtal í frelsi utan EES ef þú átt ekki inneign.
Er vandamálið bundið við eitt númer eða öll? ef vandamálið er eitt númer þarf að skoða það hjá viðkomandi sem þú ert að reyna að ná í.
Hefur þú verið lengur erlendis, innan EES, en 2 mánuði á síðasta 4 mánaða tímabili? Þá þarft þú að skoða hvort númerið sé komið í varanlegt reiki og möguleikinn á því að þú þurfir að byrja á að greiða fyrir notkun, sjá hér. Þú getur séð hvort númerið sé í varanlegu reiki í gegnum Stólinn í Nova appinu.
Til þess að kynna þér betur Varanlegt reiki getur þú smellt hér.
Hvað gerist þegar þú reynir að hringja? kemur sónn? heyrist eitthvað í símanum? kemur einhver villa upp á skjáinn? Ef þú getur ekki ennþá hringt endilega prófaðu að heyra í okkur á netspjallinu á nova.is svo við getum græjað þetta með þér.