Ef iPhone síminn þinn sýnir ranga GPS staðsetningu getur það stafað af mörgum þáttum, bæði hugbúnaðar- og stillingavandamálum. Þessi grein leiðir þig í gegnum algengar aðferðir til að greina og laga vandamálið.
Lýsing vandamáls
GPS staðsetning í iPhone er ónákvæm, sýnir vitlausan stað eða virkar ekki í sumum öppum.
Einkenni
-
Kortasíður sýna vitlausa staðsetningu
-
GPS virkar í sumum öppum en ekki öðrum
-
GPS staðsetning uppfærir sig ekki
Grunnskref til að prófa
☑ Endurræstu símann (slökktu og kveiktu aftur)
☑ Gakktu úr skugga um að þú sért með nýjustu iOS uppfærslu
☑ Uppfærðu viðkomandi öpp (t.d. korta- eða staðsetningaöpp)
Skref-fyrir-skref bilanaleit
1. Uppfæra stýrikerfi
Farðu í Settings > General > Software Update og tryggðu að þú sért með nýjustu útgáfu af iOS.
2. Uppfæra viðeigandi öpp
Opnaðu App Store > Profile icon > Updates og uppfærðu öll öpp sem nota staðsetningu.
3. Staðsetningaleyfi fyrir öpp
Fyrir hvert app:
Settings > [Veldu app] > Location → veldu While Using the App eða Always.
4. Athuga Location Services
Farðu í Settings > Privacy & Security > Location Services.
-
Tryggðu að kveikt sé á stillingunni.
-
Prófaðu að slökkva í 10 mínútur, kveikja aftur og endurræsa símann.
5. Endurstilla Location & Privacy stillingar
Farðu í Settings > General > Transfer or Reset iPhone > Reset > Reset Location & Privacy og endurræstu símann.
6. Endurstilla netstillingar (ef ekkert annað virkar)
Settings > General > Transfer or Reset iPhone > Reset > Reset Network Settings.