Skip to content
Íslenska - Ísland
  • There are no suggestions because the search field is empty.

Netlaus Iphone

Þessi grein leiðir þig í gegnum algeng skref til að leysa vandamál þar sem iPhone sími nær ekki sambandi við farsímanet Nova.

Lýsing á vandamáli

Síminn sýnir "No Service" eða "Searching" í stað þess að tengjast Nova netinu. Þú getur ekki hringt símtöl eða notað farsímanet.

Einkenni

  • Engin þjónusta eða leit eftir þjónustu á skjánum.
  • Ekki hægt að hringja eða senda SMS.
  • Farsímanet virkar ekki, jafnvel með nægu gagnamagni.

Grunn bilanagreining

Athugaðu eftirfarandi atriði:

  • Er flight mode óvirkt?
  • Er skuld hjá Nova sem gæti valdið lokun?
  • Er kveikt á farsímagögnum (Mobile data)?

Ítarleg bilanagreining

Skref 1: Endurræstu símann

Slökktu alveg á símanum og kveiktu aftur. Þetta leysir oft tengingarvandamál.

Skref 2: Prófaðu SIM kortið í öðrum síma

Ef kortið virkar í öðrum síma er vandamálið líklega tengt símanum þínum.

Skref 3: Er síminn uppfærður?

Farðu í Settings > General > Software update og athugaðu hvort boðið sé upp á uppfærslu á hugbúnaði.

Skref 4: Endurstilla netstillingar

Farðu í Settings > General > Transfer or Reset iPhone > Reset > Reset Network Settings.

Aðvörun: Þetta fjarlægir Wi-Fi lykilorð og stillingar.

Hafðu samband

Ef skrefin að ofan leysa ekki vandann skaltu hafa samband við þjónustuver Nova:

  • Spjall á nova.is
  • Hringdu í 519 1919

Viðbótarupplýsingar

Flest tengingarvandamál má leysa með einföldum skrefum eins og að endurræsa tækið eða athuga SIM kort. Ef vandamálið viðhelst, þá er þjónustuver Nova til taks.