Þessi leiðarvísir hjálpar þér að leysa algeng vandamál sem geta komið upp með 5G ráter frá Nova. Hvort sem tengingin er óstöðug, engin nettenging næst, eða tækið virðist ekki virka rétt, þá ætti þessi grein að hjálpa þér að finna og leysa vandann hratt og örugglega.
Gott er að ganga úr skugga um að reikningar séu greiddir, þú sért í áskriftarleið eða gagnamagnið er ekki búið á netnúmerinu með því að fara inn í Stólinn í Nova appinu eða senda okkur línu á spjallinu, nova.is.
Einkenni
- Enginn nettenging eða internetljós blikkar rautt
- WiFi heiti birtist ekki á tækjum
- Ráter virðist ekki ræsa sig eða loga engin ljós
Grunnskref í bilanagreiningu
✅ Athugaðu hvort ráterinn sé tengdur við rafmagn
✅ Endurræstu ráterinn (aftengdu rafmagn í 30 sekúndur og tengdu aftur)
✅ Gakktu úr skugga um að SIM-kortið sé rétt sett í
✅ Prófaðu að færa ráterinn nær glugga til að bæta móttökuskilyrði
✅ Prófaðu annað rafmagnstengi
Ítarleg skref í bilanagreiningu
Skref 1: Athugaðu ljós á ráter
5G ljós:
Kveikt: Tæki er tengt við 5G.
Slökkt: Tæki tengist ekki við 5G, staðsettu router betur með því að setja hann í glugga sem beinir að næsta 5G sendi. Ef nokkrir sendar eru í kringum þig er gott að prófa að beina honum í áttina að mismunandi sendum.
4G ljós:
Kveikt: Tæki er tengt við 4G eða 4.5G.
Slökkt: Tæki tengist ekki við 4G eða 4.5G, staðsettu router betur með því að setja hann í glugga sem beinir að næsta sendi. Ef nokkrir sendar eru í kringum þig er gott að prófa að beina honum í áttina að mismunandi sendum.
Status ljós:
Kveikt: Tæki tengt við router og netstreymi á milli.
Slökkt: Tengdu tæki við routerinn með notendanafni og lykilorði (límmiði aftan á router). Er SIM-kortið rétt sett í og virkt?
Skref 2: Athugaðu staðsetningu á ráter
Það mikilvægasta sem þarf að huga að þegar um 5G net er að ræða er staðsetning ráters við næsta sendi. Mikilvægt er að vera með ráterinn í glugga og beina honum í sem mest beinni línu að næsta sendi. Þú getur séð hvernig þjónustusvæðið í kringum þig er og fengið upplýsingar hvert er best að beina ráternum með því að smella hér.
Gott er að leyfa ráternum að standa í glugga í 2-5 min óáreittan til þess að gefa honum færi á að tengja sig við tíðni. Til þess að sjá hvort ráter sé á góðri staðsetningu getur þú sótt Speedtest.net by Ookla appið, passa að Nova sé server og tekið hraðaprófun á þeim stöðum sem þú færir ráterinn á.
Skref 3: Grunnstilltu ráter
- Ýttu með nál eða klemmu í reset-gat aftan á ráternum í 10 sekúndur.
- Tækið endurræsist og ætti að stilla sig sjálfkrafa.
- Athugaðu að WiFi heiti og lykilorð breytist í upprunalegar stillingar.
Hafðu samband við þjónustuver
Ef ekkert af ofangreindu leysir vandann geturðu haft samband við þjónustuver Nova