Í þessari grein förum við yfir bilanagreiningu fyrir 4G rátera. Þar sem margar tegundir af 4G ráterum er í umferð verður farið almennt yfir stöðu ljósa en ekki fyrir hvert tæki fyrir sig, en að þekkja ljósin getur komið þér ansi langt.
Gott er að ganga úr skugga um að reikningar séu greiddir, þú sért í áskriftarleið eða gagnamagnið sé ekki búið á netnúmerinu með því að fara inn í Stólinn í Nova appinu eða sent okkur línu á spjallinu á nova.is.
Byrjum á þessu sígilda, er búið að slökkva og kveikja?
Endilega byrjaðu á því að endurræsa bæði ráter og öll nettengd tæki á heimilinu áður en við höldum áfram.
Það mikilvægasta sem þarf að huga að þegar um 4G net er að ræða er staðsetning ráters við næsta sendi. Mikilvægt er að vera með ráterinn í glugga og beina honum í sem mest beinni línu að næsta sendi. Þú getur séð hvernig þjónustusvæðið í kringum þig er og fengið upplýsingar hvert er best að beina ráternum með því að smella hér.
Gott er að leyfa ráternum að standa í glugga í 2-5 min óáreittan til þess að gefa honum færi á að tengja sig við tíðni. Til þess að sjá hvort ráter sé á góðri staðsetningu getur þú sótt Speedtest.net by Ookla appið, passa að Nova sé server og tekið hraðaprófun á þeim stöðum sem þú færir ráterinn á.
Ert þú að nýta þér VPN/DNS þjónustu? Það getur haft mikil áhrif á gæði tengingarinnar, svo ef þú ert að nýta þér slíka þjónustu máttu prófa að slökkva á þjónustunni, endurræsa ráter og tæki og sjá hvernig netið hagar sér.
Er ekki örugglega kveikt á báðum tíðnum? 2.4 og 5.0(ac)? Smelltu hér
Ef það er ekkert net getur þú athugað hvort APN stillingar séu réttar. Smelltu hér
Ljósin geta sagt okkur heilmikið. Hér fyrir neðan er listi yfir ljósin og hvað þau þýða en þessi listi er ekki tæmandi þar sem fjöldi rátera hefur áhrif á uppröðun og tegund ljósa:
Power ljós:
Kveikt: Kveikt á ráter.
Slökkt: Slökkt á ráter - ef það er slökkt þá þarft þú að kveikja með on/off takkanum eða setja búnaðinn í samband við rafmagn. Ef búnaðurinn er í sambandi við rafmagn þarft þú að prófa aðra innstungu. Ef önnur innstunga virkar ekki en annað tæki fær rafmagn (t.d hleðsla á síma) mátt þú koma í næstu verslun og fá nýjan straumbreyti.
Status ljós:
Slökkt: Engin internet tenging - athuga reikninga, áskriftarleið, gagnamagn og staðsetningu ráters.
Kveikt: Nettenging virk.
WIFI ljós:
Kveikt: Kveikt á þráðlausu neti.
Slökkt: Slökkt á þráðlausu neti (þarf að LAN tengja ráter við tölvu til að kveikja á Wifi inná stillingarsíðu). Smelltu hér fyrir Huawei B818-263 og hér fyrir Huawei B618s-22d
LAN ljós:
Kveikt: Eitt eða fleiri Ethernet/LAN tengi eru í notkun.
Blikkandi: Ethernet/LAN tenging í gangi.
Slökkt: Ekkert tæki Ethernet/LAN tengt við ráter.
Signal ljós:
Kveikt: Þrjú signal ljós eru á boxinu. Því fleiri sem eru kveikt, því betra signal er boxið að fá.
Slökkt: Router ekki að ná signali. Athuga Mode ljós.
Mode ljós:
Stöðugt ljósblátt ljós: Tengt við LTE/4G.
Stöðugt dökkblátt ljós: Tengt við 3G
Stöðugt gult ljós: Tengt við 2G
Stöðugt grænt ljós: Net tengt í gegnum WAN port.
Stöðugt rautt ljós: Ef Mode ljósið logar rautt þarf að athuga hvort APN stillingar séu réttar, smelltu hér fyrir gamla viðmótið og hér fyrir nýja viðmótið.
Ef APN stillingar eru réttar þarf að athuga hvort símkortið sé ekki örugglega rétt í sleðanum. Ef simkortið snýr rétt í þá getur verið að simkortið sé ónýtt og þú þurfir að fá nýtt simkort.
Ef þú átt ennþá í vandræðum með netið hjá þér, reikningar greiddir og ráter á besta stað er heppilegast að heyra í okkur á netspjallinu á nova.is svo við getum græjað þetta saman.