Greinar um þetta efni

Breyta nafni og lykilorði á Nova ráter

Þegar breytt er um heiti á þráðlausa netinu, lykilorð inná netið eða lykilorð inná ráterinn sjálfann er mikilvægt að gera 'Forget this network' á öllum tækjum sem hafa tengst við netið og endurræsa ráter og tæki, þú þarft svo að tengja tækin upp á nýtt með nýjum stillingum.

Smelltu á ráterinn sem þú ert með:

f50.pngimage.png

Skref 1: Skráðu þig inn á stillingarsíðu rátersins

  1. Opnaðu vafrann og sláðu inn IP-tölu rátersins:
    • Huawei DG8245W2 eða F50 ljósleiðararáter192.168.1.1
    • 4G/4.5G ráter (t.d. Huawei B818-263)192.168.8.1
  2. Skráðu þig inn:
    • Notendanafn: Useradmin eða admin
    • Lykilorð: @HuaweiHgwadmin eða Wi-Fi lykilorðið (ef það hefur verið breytt)

Skref 2: Breyttu nafni og lykilorði á Wi-Fi netinu

  1. Farðu í Wi-Fi Settings eða WLAN Basic Settings.
  2. Veldu tíðni (2.4GHz og/eða 5GHz) og breyttu:
    • SSID: Nafn Wi-Fi netsins
    • Password: Lykilorð fyrir Wi-Fi netið
  3. Vistaðu breytingarnar.

Athugið að æskilegt er að hafa sama nafn og sama password á báðum tíðnunum til að auðvelda tækjum að flakka á milli.

 

Skref 3: Breyttu lykilorði fyrir stillingarsíðu rátersins

  1. Farðu í Settings > System Management > Account Management > Change Password.
  2. Sláðu inn núverandi lykilorð og nýtt lykilorð.
  3. Vistaðu breytingarnar.

 

Huawei DG8245W2 Ljósleiðararáter

Opnaðu 192.168.1.1 í vafra á tæki sem er tengt við ráterinn og skráðu þig inn með notendanafninu Useradmin og lykilorðinu @HuaweiHgw (Þessar upplýsingar eru skráðar á límmiða undir ráternum).

Hægt er kveikja og slökkva á tíðnum (wLan), breyta nafni á ráter og lykilorði inn á Wi-Fi ásamt því að breyta lykilorði inn á stillingarsíðu rátersins með eftirfarandi leiðbeiningum:

Forsíðan sem ráterinn opnast inná:

Screenshot_2021-01-14_at_11.04.06.png

Smelltu á turninn með bylgjunum - 'Wi-Fi configuration' og þá opnast 'Wi-fi Settings' - þar getur þú séð hvort það sé kveikt á báðum tíðnum, 2.4ghz og 5.0ghz. Þar getur þú einnig breytt heitinu á netinu og lykilorði á þráðlausa netið.

lykilor_a_wifi.png

Til þess að breyta lykilorðinu inná stillingarsíðu rátersins ferð þú inn í Settings - Management - Account - Change Password
Athugaðu að ef þú breytir lykilorði og lendir í netvandræðum þarftu að láta vita af breytingunum í samskiptum við Nova.

Screenshot_2021-01-14_at_11.11.04.png

 

Huawei F50 Ljósleiðararáter:

Opnaðu 192.168.1.1 í vafra á tæki sem er tengt við ráterinn og skráðu þig inn með notendanafninu Useradmin og lykilorðinu @HuaweiHgw (Þessar upplýsingar eru skráðar á límmiða undir ráternum).

Hægt er kveikja og slökkva á tíðnum (wLan), breyta nafni á ráter og lykilorði inn á Wi-Fi ásamt því að breyta lykilorði inn á stillingarsíðu rátersins með eftirfarandi leiðbeiningum:

Síðan sem opnast við að setja 192.168.1.1 í vafra:

Screenshot 2024-11-21 at 14.14.33.png

Forsíðan sem ráterinn opnast inná:

Screenshot 2024-11-21 at 14.17.19.png

Smelltu á turninn með bylgjunum - 'Wi-Fi configuration' og þá opnast 'Wi-fi Settings' - þar getur þú séð hvort það sé kveikt á báðum tíðnum, 2.4ghz og 5.0ghz. Þar getur þú einnig breytt heitinu á netinu og lykilorði á þráðlausa netið.

Best er að hafa nafnið og lykilorðið það sama á báðum stöðum.

Screenshot 2024-11-21 at 14.14.02.png

Einnig er hægt að breyta lykilorðinu inná stillingarsíðu rátersins ferð þú inn í Settings - System Management - Account Management - Change Password
Athugaðu að ef þú breytir lykilorði og lendir í netvandræðum þarftu að láta vita af breytingunum í samskiptum við Nova.

Screenshot 2024-11-21 at 14.14.18.png

 

Var þessi grein gagnleg?
15 af 21 fannst þessi grein gagnleg