Í Stólnum á nova.is eða í Nova appinu getur greiðandi AlltSaman opnað eða lokað fyrir aukakostnað í stillingum allra númera sem eru í pakkanum.
Innifalið í AlltSaman er ótakmarkað, net, símtöl og SMS á Íslandi og 15 GB netnotkun innan EES á hverju farsímanúmeri.
Greitt er sérstaklega fyrir farsímanotkun á ferðalögum utan Evrópu (EES), gott er að kynna sér verðskrá landsins áður en haldið er af stað og í þeim löndum sem Ferðapakkinn gildir í mælum við með honum!
Símtöl til útlanda og símtöl í þjónustunúmer (t.d. upplýsingaveitur, styrktarnúmer eða Eurovision) er einnig greitt fyrir aukalega.
Greitt er fyrir þær þjónustur sem falla undir aukakostnað í lok dags á þeim degi sem notkun á sér stað.
Yfirlit yfir aukakostnað má finna undir Greiðslur flipanum.