Nú getum við flutt símanúmer á milli iPhone síma með einföldum hætti. Hægt er að flytja eSIM og simkort yfir á þennan máta. Ef þú ert með simkort en ekki eSIM í tækinu þínu, þá breytir síminn simkortinu yfir í eSIM og flytur númerið frá gamla símanum yfir í þann nýja með einföldum hætti.
Það er einnig hægt að gera þetta í uppsetningarflæði á nýjum síma þegar verið er að flytja gögn af gamla símanum yfir í þann, þá kemur þetta sem eitt skref í ferlinu.
A.T.H. að eSIM styður ekki rafræn skilríki enn þá, þ.a. rafrænu skilríin þín munu óvirkjast ef þú ert með simkort í gamla símanum. Það þarf því að setja upp auðkennisappið á nýja tækinu.
Opnaðu nýja símann og farðu inn í Settings > Mobile Service > Set up Mobile Service. Þá opnast þessi gluggi:
- Veldu þar "Transfer From Nearby iPhone"
Næst opnarðu gamla símann, en þar opnast eftrifarandi gluggi sem segir "Transfer Phone Number" - ýttu á "Continue:
Því næst opnast eftirfarandi gluggi þar sem þú þar sem þú þarft að stimpla inn staðfestingarkóða sem birtist á skjánum á gamla símanum:
- þegar þú ert búinn að stimpla inn staðfestingarskóðann á nýja símanum, þá snúum við okkur aftur að gamla símanum og klárum ferlið þar
Veljum "Transfer From iPhone"
- Þar velurðu svo númerið sem á að flytja yfir í nyja símann. Nú fer símtækið í að flytja númerið út gamla símanum yfir í nýja símann. Þetta getur tekið nokkrar mínútur. Þegar ferlið er búið, þá er búið að flytja simkortið þitt yfir í nýja símann sem eSIM.