Greinar um þetta efni

Hvað er eero Secure?

eero Secure er aukaöryggisþjónusta fyrir eero WiFi netið þitt og fylgir frítt með öllum eero tækjum hjá Nova.
Hún bætir við vernd og stjórnunarmöguleikum sem hjálpa til við að halda heimilisnetinu öruggu og auðveldara í umsjón.

eero Secure kemur ekki í staðinn fyrir góða nethegðun eða vírusvörn á öllum tækjum, en getur hjálpað til við að minnka áhættu á netinu.

Hvað ver eero Secure gegn?

eero Secure getur hjálpað til við að verja tæki á heimilisnetinu gegn:

  • Skaðlegum vefsíðum
    Hjálpar til við að loka á eða vara við síðum sem geta verið hættulegar.
  • Netógnum og malware
    Advanced Security hjálpar til við að vernda tæki á netinu gegn netógnum. 
  • Óæskilegu efni
    Hægt er að nota content filtering til að setja síur á allt heimilið eða á ákveðna prófíla. 
  • Óviðeigandi leitarniðurstöðum
    SafeSearch getur hjálpað til við að sía óviðeigandi niðurstöður í leitarvélum eins og Google, Bing og DuckDuckGo.

Foreldraeftirlit

Með eero Secure er hægt að nota prófíla og foreldraeftirlit.

Þú getur til dæmis:

  • búið til prófíl fyrir barn eða heimilismeðlim
  • sett tæki undir ákveðinn prófíl
  • sett tímastýringar
  • síað efni eftir þörfum
  • stöðvað netaðgang tímabundið

Sjálfvirkar uppfærslur

eero tæki fá reglulegar hugbúnaðaruppfærslur. Þær hjálpa til við að bæta virkni, laga villur og halda búnaðinum öruggari. eero leggur áherslu á að tæki séu með nýjustu firmware útgáfu til að viðhalda öryggi og virkni.

Er eero öruggt?

Já, eero er hannað með öryggi í huga. Venjuleg eero tæki nota dulkóðun og öryggisstaðla og fá sjálfvirkar uppfærslur. Með eero Secure bætist við aukin vernd, t.d. gegn hættulegum síðum, óæskilegu efni og netógnum.

Gott að vita

eero Secure hjálpar til við að vernda heimilisnetið, en það tryggir ekki 100% vörn gegn öllum ógnum. Það er áfram mikilvægt að nota sterk lykilorð, uppfæra tæki reglulega og fara varlega með óþekkta hlekki og viðhengi.

Algengar spurningar

Ver eero Secure öll tæki á heimilinu?

Það hjálpar til við að vernda tæki sem eru tengd eero netinu. Sum öryggisvirkni gildir á netinu sjálfu, en ekki endilega utan heimilisnetsins.

Get ég lokað á ákveðnar síður?

Já, eero Secure styður að loka á eða leyfa ákveðnar vefsíður fyrir allt netið eða ákveðna prófíla. 

Get ég stjórnað netnotkun barna?

Já, ef eero Secure eða eero Plus er virkt. Þá er hægt að nota prófíla, síur og tímastýringar.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg