Hvað er eero Secure?
eero Secure er aukaöryggisþjónusta fyrir eero WiFi netið þitt og fylgir frítt með öllum eero tækjum hjá Nova.
Hún bætir við vernd og stjórnunarmöguleikum sem hjálpa til við að halda heimilisnetinu öruggu og auðveldara í umsjón.
eero Secure kemur ekki í staðinn fyrir góða nethegðun eða vírusvörn á öllum tækjum, en getur hjálpað til við að minnka áhættu á netinu.
Hvað ver eero Secure gegn?
eero Secure getur hjálpað til við að verja tæki á heimilisnetinu gegn:
- Skaðlegum vefsíðum
Hjálpar til við að loka á eða vara við síðum sem geta verið hættulegar. - Netógnum og malware
Advanced Security hjálpar til við að vernda tæki á netinu gegn netógnum. - Óæskilegu efni
Hægt er að nota content filtering til að setja síur á allt heimilið eða á ákveðna prófíla. - Óviðeigandi leitarniðurstöðum
SafeSearch getur hjálpað til við að sía óviðeigandi niðurstöður í leitarvélum eins og Google, Bing og DuckDuckGo.
Aukið öryggi á netinu
eero Secure getur hjálpað til við að verja heimilisnetið gegn hættulegum síðum og netógnum áður en þær valda vandræðum. Þjónustan inniheldur meðal annars Active Threat Protection, sem hjálpar til við að stöðva tilraunir til að opna hættulegar síður.
Foreldraeftirlit
Með eero Plus er hægt að stjórna netnotkun barna með einföldum hætti. Til dæmis er hægt að:
- setja efnisfiltera
- loka á ákveðnar tegundir efnis
- loka á ákveðin öpp eða síður
- setja netáætlanir fyrir tæki eða heimilið
- pásað netið tímabundið á völdum tækjum
Auglýsinga- og rakningarvörn
eero Plus getur hjálpað til við að loka á auglýsingar, pop-up glugga og rakningarforrit á netinu. Þetta getur gert vafraupplifunina þægilegri á mörgum tækjum heimilisins.
Internet backup
Internet backup gerir eero kleift að nota aðra þráðlausa tengingu, til dæmis hotspot úr síma, ef aðaltengingin dettur út. Þetta er hugsað sem varaúrræði til að halda heimilinu tengdu þegar truflun verður á netinu.
Sjálfvirkar uppfærslur
eero tæki fá reglulegar hugbúnaðaruppfærslur. Þær hjálpa til við að bæta virkni, laga villur og halda búnaðinum öruggari. eero leggur áherslu á að tæki séu með nýjustu firmware útgáfu til að viðhalda öryggi og virkni.
Er eero öruggt?
Já, eero er hannað með öryggi í huga. Venjuleg eero tæki nota dulkóðun og öryggisstaðla og fá sjálfvirkar uppfærslur. Með eero Secure bætist við aukin vernd, t.d. gegn hættulegum síðum, óæskilegu efni og netógnum.
Gott að vita
eero Secure hjálpar til við að vernda heimilisnetið, en það tryggir ekki 100% vörn gegn öllum ógnum. Það er áfram mikilvægt að nota sterk lykilorð, uppfæra tæki reglulega og fara varlega með óþekkta hlekki og viðhengi.
Algengar spurningar
Ver eero Secure öll tæki á heimilinu?
Það hjálpar til við að vernda tæki sem eru tengd eero netinu. Sum öryggisvirkni gildir á netinu sjálfu, en ekki endilega utan heimilisnetsins.
Get ég lokað á ákveðnar síður?
Já, eero Secure styður að loka á eða leyfa ákveðnar vefsíður fyrir allt netið eða ákveðna prófíla.
Get ég stjórnað netnotkun barna?
Já, ef eero Secure eða eero Plus er virkt. Þá er hægt að nota prófíla, síur og tímastýringar.