Greinar um þetta efni

Hvernig set ég upp eero?

eero tengist ljósleiðaranum þínum í gegnum ljósleiðarabox. Aðaleiningin, sem kallast gateway eero, er tengd með netsnúru við ljósleiðaraboxið og sér síðan um WiFi dreifinguna á heimilinu.

eero er mesh WiFi kerfi. Það þýðir að ef þú ert með fleiri en eina eero einingu vinna þær saman til að dreifa WiFi betur um heimilið. eero notar líka TrueMesh tækni sem hjálpar netinu að velja bestu leiðina fyrir tenginguna hverju sinni.

Það sem þú þarft áður en þú byrjar

Áður en þú setur eero upp er gott að vera með:

  • virka ljósleiðaratengingu
  • ljósleiðarabox
  • eero tæki
  • netsnúru, einnig kölluð Ethernet snúra
  • síma eða spjaldtölvu
  • eero appið
  • Bluetooth virkt í símanum
  • nettengingu í símanum á meðan uppsetning fer fram, til dæmis farsímanet

Sæktu eero appið

Þú setur eero upp í eero appinu. Appið leiðir þig í gegnum uppsetninguna skref fyrir skref og er líka notað til að stjórna WiFi netinu eftir uppsetningu, til dæmis til að sjá tengd tæki, breyta WiFi nafni eða endurræsa netið.

Sæktu appið hér:

Þú getur líka opnað App Store eða Google Play í símanum og leitað að eero.


Hvernig tengi ég eero við ljósleiðara?

1. Athugaðu ljósleiðaraboxið

Gakktu úr skugga um að ljósleiðaraboxið sé tengt við rafmagn og að ljósleiðaratengingin sé virk.

Ef þú ert að skipta úr gömlum router yfir í eero skaltu aftengja gamla routerinn frá ljósleiðaraboxinu áður en þú tengir eero.


2. Tengdu aðal eero við ljósleiðaraboxið

  1. Stingdu netsnúru úr LAN porti á ljósleiðaraboxinu í Ethernet port á eero.
  2. Tengdu eero við rafmagn.
  3. Bíddu þar til ljósið á eero byrjar að blikka.

Þessi fyrsta eero eining verður aðaleiningin á netinu þínu.


3. Settu upp eero í appinu

  1. Opnaðu eero appið.
  2. Skráðu þig inn eða búðu til eero aðgang.
  3. Veldu Set up eero network.
  4. Fylgdu skrefunum í appinu.

Appið finnur eero tækið, athugar tenginguna og leiðir þig áfram í uppsetningunni.


4. Veldu WiFi nafn og lykilorð

Í uppsetningunni velur þú:

  • nafn á WiFi netinu
  • lykilorð fyrir WiFi

Þú getur annað hvort notað sama WiFi nafn og sama lykilorð og var á gamla routernum, eða valið nýtt.

Ef þú notar sama WiFi nafn og sama lykilorð ættu flest tæki á heimilinu að tengjast sjálfkrafa við nýja eero netið. Þetta getur sparað tíma, sérstaklega ef þú ert með mörg tæki eins og síma, sjónvörp, prentara, myndavélar eða snjallheimilistæki.

Ef þú velur nýtt WiFi nafn eða nýtt lykilorð þarftu að tengja tækin þín aftur við nýja WiFi netið handvirkt.


5. Bættu við fleiri eero einingum ef þarf

Ef heimilið er stórt, á mörgum hæðum eða með svæði þar sem WiFi nær illa, getur verið gott að bæta við fleiri eero einingum.

Þú bætir við fleiri eero einingum í appinu. Appið hjálpar þér að finna góða staðsetningu og tengja þær við netið.


Ráð um staðsetningu

Til að fá sem besta tengingu:

  • hafðu aðal eero á opnum stað
  • ekki fela eero inni í skáp eða á bak við sjónvarp
  • hafðu eero frekar miðsvæðis á heimilinu ef hægt er
  • hafðu smá bil á milli eero eininga ef þú ert með fleiri en eina
  • forðastu að setja eero alveg við stór málmhluti, þykka veggi eða önnur tæki sem geta truflað WiFi

Ef WiFi virkar illa á ákveðnum stað getur lausnin verið að færa eero eða bæta við annarri einingu nær því svæði.


Algengar spurningar

Þarf ég að skipta út ljósleiðaraboxinu?

Nei, yfirleitt ekki. eero tengist við ljósleiðaraboxið og sér síðan um WiFi netið á heimilinu.

Get ég notað sama WiFi nafn og lykilorð og áður?

Já. Það er oft góð hugmynd ef þú vilt að tækin þín tengist sjálfkrafa við nýja eero netið.

Passaðu bara að skrifa nafnið og lykilorðið nákvæmlega eins og áður, þar með talið stóra og litla stafi.

Hvað ef tækin mín tengjast ekki sjálfkrafa?

Prófaðu að slökkva og kveikja á WiFi í tækinu. Ef það dugar ekki skaltu velja WiFi netið handvirkt og slá inn lykilorðið aftur.

Get ég verið með fleiri en eina eero einingu?

Já. eero er mesh WiFi kerfi og hægt er að bæta við fleiri einingum til að stækka þráðlausa netið um heimilið. 

Hvað ef uppsetningin virkar ekki?

Prófaðu að:

  1. athuga hvort ljósleiðaraboxið sé tengt og virkt
  2. athuga hvort netsnúran sé rétt tengd
  3. endurræsa ljósleiðaraboxið
  4. endurræsa eero
  5. færa eero nær ljósleiðaraboxinu á meðan uppsetning fer fram
  6. athuga hvort Bluetooth og staðsetningarþjónusta séu virk í símanum
  7. loka eero appinu og opna það aftur
  8. keyra uppsetninguna aftur í appinu

Ef eero kemur ekki online eftir þessi skref getur þurft að hafa samband við Nova.

 
 

 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg