Greinar um þetta efni

Hversu marga eero þarf ég?

 

Fjöldi eero eininga sem þú þarft fer eftir stærð heimilisins, skipulagi þess og hvernig internetið er notað. Með fleiri eero einingum færðu betri dreifingu á WiFi, færri „dauð svæði“ og stöðugri tengingu um allt heimilið. eero notar mesh tækni og TrueMesh til að láta allar einingar vinna saman sem eitt samræmt WiFi net.


Almennt viðmið

Stærð heimilisMælt með
Lítið heimili / íbúð (allt að ~150 m²)1 eero
Meðalstórt heimili (150–300 m²)2 eeros
Stórt heimili eða fleiri hæðir (300 m²+)3 eða fleiri eeros

Athugið: Veggir úr steypu, kjallarar, bílskúrar og margar hæðir geta kallað á fleiri einingar.


Hvenær gæti þú þurft fleiri eeros?

Þú gætir þurft fleiri einingar ef:

  • WiFi er lélegt í ákveðnum herbergjum
  • Heimilið er á fleiri en einni hæð
  • Þú ert með mikið af snjalltækjum
  • Margir eru að streyma, spila eða vinna heiman frá sér á sama tíma
  • Þú vilt góða tengingu í bílskúr, garði eða kjallara

eero mesh netið finnur sjálfkrafa bestu leiðina fyrir gögnin að ferðast um heimilið til að halda tengingunni stöðugri.


Dæmi um algengar aðstæður

Lítil íbúð eða minna heimili

Ef þú býrð í minni íbúð og notar internetið aðallega fyrir sjónvarp, síma og tölvu getur einn eero verið nóg.

Fjölskylda með mörg tæki

Ef margir eru samtímis í tölvuleikjum, streymi eða fjarvinnu er oft mælt með 2–3 eeros til að tryggja stöðugt WiFi um allt heimilið.

Stórt eða snjallt heimili

Í stærri húsum með mörgum snjalltækjum, mörgum hæðum eða stórum útisvæðum getur þurft 3–4 eeros eða fleiri.


Hvernig veit ég hvort ég þurfi fleiri?

Algeng merki eru:

  • Hægt internet í ákveðnum herbergjum
  • Myndsímtöl detta út
  • Myndbönd buffer-a
  • Snjalltæki detta af netinu
  • Veik tenging langt frá aðaleiningu

Góð ráð um staðsetningu

Til að fá sem besta virkni:

  • Settu aðal eero nálægt ljósleiðaraboxi
  • Hafðu eeros á opnum svæðum
  • Forðastu að fela þær inni í skápum
  • Reyndu að hafa ekki of langt á milli eininga

FAQ

Get ég byrjað með færri eeros?

Já. Það er auðvelt að bæta við fleiri einingum síðar ef þörf er á.

Get ég verið með of margar einingar?

Já, í sumum tilvikum geta of margar einingar of nálægt hvor annarri valdið truflunum. Best er að velja fjölda miðað við stærð og skipulag heimilisins.

Virka allar eero einingar saman?

Já, mismunandi eero módel geta unnið saman í sama mesh neti.


 

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg