Ef WiFi nær illa í ákveðin herbergi, dettur út eða verður hægt þegar margir eru online, eru nokkur einföld atriði sem geta bætt dreifingu og stöðugleika verulega. Með eero mesh kerfi vinna fleiri einingar saman til að dreifa WiFi jafnar um heimilið.
1. Færðu aðal eero á betri stað
Staðsetning skiptir miklu máli fyrir WiFi.
Best er að:
- hafa aðal eero á opnum stað
- staðsetja hann frekar miðsvæðis á heimilinu
- hafa hann uppi á borði eða hillu
- forðast að fela hann inni í skáp eða bak við sjónvarp
Forðastu einnig:
- þykka stein- eða steypuveggi
- málmhluti
- rafmagnsskápa
- örbylgjuofna og önnur tæki sem geta valdið truflunum
2. Bættu við fleiri eero fyrir heimilið
Ef heimilið er stórt eða á fleiri en einni hæð getur einn eero ekki nóg.
Mesh WiFi virkar þannig að fleiri eero einingar vinna saman sem eitt net og bæta dreifingu um allt heimilið. TrueMesh tæknin velur sjálfkrafa bestu leið fyrir gögnin til að forðast truflanir og veik svæði.
Dæmi um aðstæður þar sem fleiri einingar hjálpa:
- stór heimili
- kjallarar eða bílskúrar
- mörg snjalltæki
- mikið streymi eða leikjaspilun
- heimaskrifstofur
3. Hafðu rétt bil á milli eero eininga
Einingarnar þurfa að vera nógu nálægt hver annarri til að geta talað vel saman.
Góð þumalputtaregla:
- hafa eina eero einingu á hverri hæð
- forðast að hafa einingar of langt frá hvor annarri
- prófa mismunandi staðsetningar ef signal er veikt
Ef eining er staðsett of langt í burtu getur hún fengið veikt samband við aðal eero og þá minnkar hraðinn.
4. Endurræstu netbúnaðinn
Ef WiFi hefur verið óstöðugt í lengri tíma getur hjálpað að:
- endurræsa ljósleiðarabox
- endurræsa eero einingarnar
Þetta lagar oft tímabundin tengivandamál.
5. Athugaðu fjölda tengdra tækja
Mörg tæki á sama tíma geta haft áhrif á upplifunina, sérstaklega ef:
- verið er að streyma myndbandi í mörgum tækjum
- spila online leiki
- nota myndsímtöl
- tengja mörg snjalltæki
eero er hannað til að styðja mörg tæki samtímis, en stærri heimili geta þurft fleiri einingar til að halda góðri dreifingu.
6. Notaðu Ethernet þegar hægt er
Fyrir tæki sem þurfa mjög stöðuga tengingu, eins og:
- gaming tölvur
- sjónvörp
- heimaskrifstofur
… getur Ethernet kapall gefið stöðugri tengingu en WiFi.
Algengar spurningar
Af hverju er WiFi gott nálægt routernum en lélegt annars staðar?
Það bendir oft til þess að dreifingin sé ekki að ná yfir allt heimilið. Þá getur hjálpað að færa eero eða bæta við fleiri einingum.
Hjálpar það að vera með hraðara internet?
Ekki alltaf. Ef vandamálið er dreifing eða signal inni á heimilinu þarf oft betri staðsetningu eða fleiri eero einingar.
Hversu margar eero þarf ég?
Það fer eftir stærð heimilis, fjölda hæða og hversu mörg tæki eru tengd.