Greinar um þetta efni

Advanced Networking í eero appinu

Hvað er Advanced Networking?

Advanced Networking eru ítarlegar netstillingar í eero appinu. Þar er hægt að breyta stillingum sem hafa áhrif á hvernig eero netið tengist internetinu og hvernig tæki tengjast heimanetinu.

Flestir þurfa ekki að breyta þessum stillingum. Þær eru helst notaðar þegar þarf að leysa sérstök tengivandamál eða setja upp ákveðin tæki, t.d. leikjatölvur, öryggismyndavélar, VPN eða annan netbúnað.


Hvar finn ég Advanced Networking?

  1. Opnaðu eero appið
  2. Veldu Settings
  3. Farðu í Network settings
  4. Veldu Advanced networking

Helstu stillingar

DHCP & NAT

Þessi stilling stjórnar því hvernig eero úthlutar IP tölum á heimilinu og hvernig netið tengist út á internetið.

Fyrir flesta er best að hafa þetta á Automatic.

Í sumum tilfellum gæti þurft að nota Bridge mode, til dæmis ef annar router er þegar að sjá um netstýringuna. Þá virkar eero meira eins og WiFi kerfi en ekki sem aðalrouter.

Athugið að þegar eero er sett í Bridge mode geta sumir eiginleikar hætt að virka eða verið takmarkaðir, til dæmis ákveðnar öryggis- og foreldraeftirlitsstillingar.


DNS

DNS hjálpar tækjunum þínum að finna réttar vefsíður á internetinu.

Yfirleitt þarf ekki að breyta DNS stillingum. Það getur þó verið gagnlegt í ákveðnum tilfellum, til dæmis við bilanagreiningu eða ef þú vilt nota ákveðna DNS þjónustu.


Reservations & Port Forwarding

Hér er hægt að stilla fasta IP tölu fyrir ákveðin tæki og opna port fyrir þjónustur sem þurfa beina tengingu inn á netið.

Þetta getur verið gagnlegt fyrir:

  • leikjatölvur
  • netleiki
  • öryggismyndavélar
  • VPN eða fjarvinnu
  • netþjóna eða sérhæfðan búnað

Flestir þurfa ekki að nota þessa stillingu nema ákveðið tæki eða þjónusta biðji sérstaklega um það.


UPnP

UPnP leyfir tækjum á netinu að opna tengingar sjálfkrafa þegar þau þurfa á því að halda.

Þetta er oft notað af leikjatölvum, tölvuleikjum og sumum snjalltækjum. Fyrir flesta er best að hafa UPnP stillt eins og það er sjálfgefið.


IPv6

IPv6 er nýrri tegund af IP tölum. Flestir notendur þurfa ekki að breyta þessari stillingu.

Ef vandamál koma upp með ákveðin tæki eða tengingar getur þjónustuver stundum beðið þig um að athuga eða breyta þessari stillingu tímabundið.


Client Steering

Client Steering hjálpar tækjum að tengjast þeim eero punkti sem hentar best hverju sinni.

Þetta getur bætt upplifunina þegar þú ferð á milli herbergja eða ert með fleiri en einn eero punkt á heimilinu.


Thread

Thread tengist ákveðnum snjallheimatækjum. Ef þú ert ekki með tæki sem nota Thread þarftu líklega ekki að breyta þessari stillingu.


Hvenær ætti ég að breyta þessum stillingum?

Þú ættir aðeins að breyta Advanced Networking stillingum ef þú veist hvað þú ert að gera eða ert að fylgja leiðbeiningum frá þjónustuveri.

Dæmi um aðstæður þar sem þessar stillingar geta skipt máli:

  • leikjatölva sýnir NAT vandamál
  • VPN virkar ekki rétt
  • ákveðin tæki detta út eða finnast ekki á netinu
  • verið er að nota annan router með eero
  • þarf að opna port fyrir sérstaka þjónustu
  • snjallheimatæki þurfa sérstaka netstillingu
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg