Ef eero netið þitt er offline þýðir það að eero nær ekki tengingu við internetið. Þá geta tækin þín séð WiFi netið, en internetið virkar ekki.
Oft er hægt að laga þetta með því að athuga rafmagn, kapla og endurræsa búnaðinn.
1. Skoðaðu ljósið á eero
Ljósið á eero getur hjálpað þér að sjá hvað er í gangi.
- Fast hvítt ljós: eero er online og tengt við internetið.
- Rautt ljós: eero er offline eða nær ekki internet tengingu.
- Blátt eða blikkandi blátt ljós: eero er í uppsetningu eða pairing.
Ef eero er með rautt ljós skaltu halda áfram með skrefin hér fyrir neðan.
3. Athugaðu rafmagn og kapla
Byrjaðu á að skoða eero tækið sem er tengt við ljósleiðaraboxið. Þetta er aðal eero tækið, eða gateway eero.
Athugaðu að:
- eero sé í sambandi við rafmagn.
- ljósleiðaraboxið sé í sambandi við rafmagn.
- netsnúran sé vel föst í eero.
- netsnúran sé vel föst í ljósleiðaraboxinu.
- netsnúran sé ekki skemmd eða laus.
Ef þú átt aðra netsnúru getur verið gott að prófa hana.
4. Endurræstu ljósleiðarabox og eero
Endurræsing leysir oft tímabundin tengivandamál.
- Taktu ljósleiðaraboxið úr sambandi við rafmagn.
- Taktu eero úr sambandi við rafmagn.
- Bíddu í um 30 sekúndur.
- Settu ljósleiðaraboxið aftur í samband.
- Bíddu þar til ljósin á ljósleiðaraboxinu eru komin í eðlilegt ástand.
- Settu eero aftur í samband.
- Bíddu í nokkrar mínútur á meðan eero tengist aftur.
Þegar allt er komið í lag ætti ljósið á eero að verða fast hvítt.
5. Skoðaðu stöðuna í eero appinu
Opnaðu eero appið og athugaðu hvort netið sé merkt sem online eða offline.
Ef appið sýnir að netið sé offline skaltu athuga hvort það sé einhver tilkynning eða alert í appinu. Hún getur gefið vísbendingu um vandamálið, til dæmis hvort eero nái ekki sambandi við ljósleiðaraboxið.
6. Ef aðeins eitt tæki virkar ekki
Ef WiFi virkar á öðrum tækjum, en ekki einu ákveðnu tæki, er netið líklega ekki offline. Þá er vandamálið frekar tengt tækinu sjálfu.
Prófaðu þá að:
- Slökkva og kveikja á WiFi á tækinu.
- Endurræsa tækið.
- Gleyma WiFi netinu og tengjast aftur.
- Athuga hvort tækið sé óvart blocked eða paused í eero appinu.
7. Hafðu samband við Nova ef netið kemur ekki inn
Hafðu samband við Nova ef:
- eero er enn með rautt ljós eftir endurræsingu
- ljósleiðaraboxið virðist ekki ná tengingu
- engin tæki komast á internetið
- eero appið sýnir enn að netið sé offline
- þú sérð skemmdan kapal eða búnað
- vandamálið kemur aftur og aftur
Þá getur þjónustuver Nova skoðað tenginguna nánar.
Algengar spurningar
Af hverju sé ég WiFi netið mitt en internetið virkar ekki?
Það getur gerst ef eero sendir enn út WiFi merki, en nær ekki tengingu út á internetið. Þá getur tækið þitt tengst WiFi, en samt ekki komist á netið.
Hvað þýðir rautt ljós á eero?
Rautt ljós þýðir yfirleitt að eero sé offline eða nái ekki internet tengingu.
Þarf ég að endurstilla eero?
Yfirleitt ekki. Ekki byrja á factory reset nema þjónustuver Nova ráðleggi það. Í flestum tilfellum er nóg að athuga kapla, rafmagn og endurræsa búnaðinn.