Snjallúrið er nú þegar tengt öðru símanúmeri
Af hverju get ég ekki virkjað Úrlausn í úrinu?
Snjallúrið þitt er nú þegar skráð með Úrlausn. Ef þú ætlar að tengja úrið við annað símanúmer þarftu fyrst að fjarlægja eldri tenginguna.
Hvernig laga ég þetta?
Byrjaðu á að fjarlægja gömlu farsímaáskriftina úr úrinu.
Apple Watch:
Opnaðu Watch → My Watch → Mobile Data, ýttu á upplýsingatáknið (ⓘ) við áskriftina og veldu Remove Nova Plan.
Samsung Galaxy Watch:
Opnaðu Galaxy Wearable → Watch settings → Mobile plans og fjarlægðu gömlu áskriftina.
Ef þú ert að færa Úrlausn yfir á annað símanúmer þarftu einnig að slökkva á Úrlausn á gamla númerinu:
- Farðu í Stólinn á nova.is.
- Veldu gamla símanúmerið.
- Veldu Úrlausn → Slökkva á pakka.
Þegar fyrri tengingin hefur verið fjarlægð geturðu prófað að virkja Úrlausn á nýja númerinu.