Skip to content
Íslenska - Ísland
  • There are no suggestions because the search field is empty.

Wonlex úr – leiðbeiningar

Áður en þú byrjar

Wonlex krakkaúrin eru snjallúr með SIM korti sem gera barninu kleift að hringja í og taka á móti símtölum frá völdum tengiliðum og foreldrum að sjá staðsetningu úrsins í appi. Uppsetningin tekur um 10–15 mínútur.

Þetta þarftu að hafa við höndina:

  • SIM kort með gagnamagni: um 1 GB á mánuði dugar fyrir staðsetningu og almenna notkun. Ef áskriftin rukkar fyrir símtöl og SMS þarf líka inneign.
  • Rétta stærð af SIM korti: Wonlex CT24 (4G) notar Nano SIM. GW400S notar Micro SIM.
  • Símann þinn: til að senda SMS skipanir í úrið og setja upp Wonlex appið.
  • QR-kóði úrsins: hann er í valmynd úrsins (undir App). Þú þarft hann til að para úrið við appið.

 

Virkjaðu úrið

Þú virkjar úrið með því að senda því SMS skipanir úr símanum þínum. Skrifaðu skipanirnar nákvæmlega eins og þær standa: lágstafir, kommur án bila og # í lokin. Sjálfgefið lykilorð úrsins er 123456.

  1. Settu SIM kortið í úrið (kubburinn snýr að skjánum) og kveiktu á því.
  2. Kveiktu á "data roaming" í símanum þínum.
  3. Skráðu símann þinn sem aðalsíma úrsins. Sendu í númer úrsins:
  • pw,123456,center,SÍMANÚMERIÐÞITT#
  1. Stilltu netstillingar (APN). Með SIM korti frá Nova sendir þú:
  • pw,123456,apn,net.nova.is,,,27411#
  1. Bíddu í um mínútu, úrið á að svara með SMS.
  2. Endurræstu úrið: haltu inni Power/SOS-takkanum í 15–60 sekúndur til að slökkva, og aftur til að kveikja.

Kemur ekkert svar?

  • Athugaðu að kveikt sé á úrinu og á "data roaming" í símanum.
  • Hringdu í úrið til að sjá hvort SIM kortið virki.
  • Farðu yfir kommur, punkta og bil í skipuninni.
  • Prófaðu lykilorðið 523681 í stað 123456.

Breyttu lykilorðinu (valkvætt)

Það er valkvætt að breyta lykilorðinu, en úrið virkar án þess að því sé breytt. Nýtt lykilorð kemur þó í veg fyrir að aðrir geti sent skipanir í úrið.

Sendu pw,GAMLA,pw,NÝJA# – nýja lykilorðið á að vera 5–9 stafir, t.d. pw,123456,pw,888999#. Úrið staðfestir ekki breytinguna. Prófaðu með því að senda pw,NÝJA,find# – þá á úrið að hringja.

 

Settu upp Wonlex appið

Í appinu sérðu staðsetningu úrsins og stjórnar hverjir mega hringja í það. Virkjaðu úrið fyrst (skref 1).

  1. Sæktu Wonlex appið í App Store (iPhone) eða Google Play (Android).
  2. Opnaðu appið og veldu Register.
  3. Skannaðu QR-kóðann á umbúðunum eða í úrinu sjálfu (undir App) til að fá auðkenni úrsins (Watch ID).
  4. Sláðu inn netfangið þitt, gælunafn barnsins og lykilorð (6–12 stafir).
  5. Gakktu úr skugga um að svæðið (region) sé Europe and Africa og kláraðu skráninguna.

Fleiri símar eða fleiri úr

  • Annar forráðamaður: sækir appið og skráir sig inn með sömu notendaupplýsingum.Settu upp Wonlex appið
  • Annað úr: ýttu á prófílmyndina efst til vinstri, veldu Device List og svo Add device.

Mikilvægar stillingar

Símaskrá, hverjir mega hringja

Undir Settings bætir þú við allt að 15 tengiliðum sem barnið getur hringt í. Símtöl frá númerum sem eru ekki á listanum eru sjálfkrafa stöðvuð.

Næði í skólanum eða á nóttunni (Do Not Disturb)

Með Do Not Disturb í appinu sýnir úrið aðeins klukkuna á völdum tímum. Tímabil verður að vera innan sólarhrings (00:01–23:59) og stillt fyrir hvern dag. Til að hafa næði frá 20:00 til 08:00 þarf tvö tímabil: 20:00–23:59 og 00:01–08:00.

Vinaúr, tenging við önnur Wonlex úr

Barnið getur tengst öðrum Wonlex úrum. Ef þú vilt loka fyrir það, sendu SMS í úrið:

  • Slökkva: pw,LYKILORÐ,makefriend,0#
  • Kveikja aftur: pw,LYKILORÐ,makefriend,1#

 

Algengar spurningar

Staðsetningin í appinu er ekki rétt. Úrið notar gervihnetti til að finna staðsetningu og þarf helst að vera utandyra. Innandyra, sérstaklega inni í miðju húsi, getur staðsetningin verið röng.

Appið segir „Device offline“ eða sýnir gamla staðsetningu. Sendu þessa skipun í úrið til að láta það tengjast þjónustunni aftur: pw,LYKILORÐ,ip,52.28.132.157,8001#

Ég týndi auðkenninu (QR-kóðanum). Þú finnur það undir App í úrinu sjálfu, eða sendir pw,LYKILORÐ,ts# í úrið.

Hvaða áskrift þarf úrið? Um 1 GB gagnamagn á mánuði dugar. Ef áskriftin rukkar fyrir símtöl og SMS þarf líka inneign.

Úrið svarar ekki SMS skipunum. Sjá "Kemur ekkert svar?“ undir skrefi 1.