Skip to content
Íslenska - Ísland
  • There are no suggestions because the search field is empty.

Net í útlöndum

Þegar við leggjum land undir fót eigum við ekki að þurfa að hafa áhyggjur af símreikningnum okkar. Viðskiptavinir Nova sem ferðast erlendis geta verið öruggir um að vera á besta dílnum miðað við notkun þeirra.

Hvert ert þú að fara?

Net í útlöndum er í boði í völdum löndum og virkjast sjálfkrafa þegar viðskiptavinir tengjast netinu í þeim löndum. Þannig fá þau sem nota netið alltaf besta dílinn miðað við notkun sína. Í löndum þar sem Net í útlöndum er ekki í boði gildir almenn verðskrá fyrir netnotkun. Þau sem vilja aðeins hringja eða senda SMS greiða samkvæmt verðskrá.

 

Í þeim löndum þar sem Net í útlöndum er í boði virkjast pakkinn sjálfkrafa þegar viðskiptavinir fara á netið og gildir í 24 klst. Pakkinn byrjar alltaf í 500 MB en ef notkun fer umfram það stækkar hann sjálfkrafa í næstu stærð. Við látum viðskiptavini þó vita með SMS áður en það gerist.

Í löndum þar sem Net í útlöndum er ekki í boði virkjast pakkinn ekki og netnotkun er gjaldfærð samkvæmt almennri verðskrá.

Helstu eiginleikar
  • Notkun gagna, símtala og SMS erlendis

  • Virkt í yfir 170 löndum

  • Engin þörf á að skipta um SIM-kort

  • Sjálfvirk tenging við erlend netkerfi

  • Stýring á notkun í Stólnum

Tæknilegar upplýsingar
  • Styður 2G, 3G, 4G og 5G net þar sem þau eru í boði

  • Hraði og aðgengi getur verið breytilegt eftir landi og netkerfum

Samhæfni
  • Virkar með öllum Nova SIM-kortum, bæði fyrir áskrift og frelsi

  • Tækið þarf að styðja reiki og þau tíðnisvið sem notuð eru í því landi sem ferðast er til

  • Þjónustan þarf að vera virk í áskriftinni

Viðbótarupplýsingar
  • Innan EES svæðisins er reiki innifalið samkvæmt reglum ESB

  • Utan EES geta átt við sér gjaldskrá og gagnapakkar

  • Skoðaðu verð eftir löndum á nova.is/roaming

Vertu tengdur sama hvar þú ert með Neti í útlöndum frá Nova. Undirbúðu ferðalagið með því að stilla reikivalkosti og njóttu heimsins án þess að missa sambandið.