Skip to content
Íslenska - Ísland
  • There are no suggestions because the search field is empty.

Hvað er þetta VoLTE?

VoLTE stendur fyrir Voice over LTE og er símtalsþjónusta sem notar 4G LTE netið til að framkvæma símtöl. Þetta skilar sér í hraðari tengingu símtala og skýrari hljómgæðum en áður þekktist með hefðbundnum 2G/3G símtölum.

VoLTE gerir notendum kleift að hringja símtöl yfir 4G netið í stað þess að síminn skipti yfir í 3G eða 2G net við símtal. Þetta þýðir betri upplifun þar sem símtöl tengjast hraðar og hljómgæði eru mun betri.

Helstu eiginleikar

  • Hraðari tenging símtala

  • Betri hljómgæði með HD Voice

  • Símtöl og gagnaflutningur samtímis

  • Minni rafhlöðunotkun í sumum tækjum

VoLTE er aðeins í boði á tækjum sem styðja þjónustuna og eru með viðeigandi hugbúnað og stillingar. Flestir nýlegir snjallsímar frá framleiðendum eins og Apple og Samsung styðja VoLTE.

Viðhald og ráðleggingar

  • Uppfærðu tækið reglulega til að tryggja samhæfni.

  • Virkja þarf VoLTE í stillingum símans ef það gerist ekki sjálfkrafa.

Viðbótarupplýsingar

 

Hvernig á að kveikja á VoLTE í Samsung símum
Hvernig á að kveikja á VoLTE í iPhone símum