Almennt um viðgerðir og ábyrgð
Bilaði græjan? Ekkert stress, við hjálpum þér að finna bestu leiðina! Ef þú keyptir tækið hjá Nova getur þú komið með það til okkar eða farið beint til viðurkennds viðgerðaraðila. Hér finnur þú upplýsingar um ábyrgð, viðgerðir og hvert þú getur leitað.
Er græjan mín í ábyrgð?
Vörur keyptar hjá Nova eru almennt með 2 ára ábyrgð frá kaupdegi. Nova býður einnig upp á 2 ára ábyrgð á vörum sem keyptar eru á fyrirtækjakennitölu samkvæmt ábyrgðarskilmálum okkar.Ábyrgðin tekur til galla sem Nova ber ábyrgð á samkvæmt lögum eða ábyrgðarskilmálum.
Bilanir sem stafa af rangri meðferð, höggum, hnjaski, vatns- eða rakaskemmdum eða eðlilegu sliti falla almennt ekki undir ábyrgð. Ef þú misstir símann í sundlaugina eða blandarann er því ólíklegt að það teljist ábyrgðarmál! Ef þú vilt aukna vernd gegn óhöppum geturðu kynnt þér tækjatryggingar. Hafi tæki verið opnað eða lagfært af öðrum en viðurkenndum viðgerðaraðila getur það haft áhrif á ábyrgð vegna bilana sem rekja má til þeirrar viðgerðar. Það þýðir þó ekki að öll lögbundin réttindi falli sjálfkrafa niður.
Hvernig kem ég tæki í viðgerð?
Þú hefur tvo valkosti þegar græja sem keypt var hjá Nova þarf að fara í viðgerð.
1. Fara beint til viðgerðaraðila – fljótlegri leið
Þú getur farið beint til viðurkennds viðgerðaraðila þegar sú þjónusta er í boði. Þannig sleppurðu við flutningstímann í gegnum Nova og viðgerðin getur gengið hraðar fyrir sig.Við aðstoðum þig við að finna réttan aðila og útvegum kaupnótu ef þess þarf.
2. Koma með tækið til Nova – við græjum milligönguna
Þú getur að sjálfsögðu líka komið með tækið í verslun Nova. Við skráum viðgerðarbeiðni og komum tækinu áfram til viðeigandi viðgerðaraðila.Athugaðu að þetta getur tekið lengri tíma þar sem flytja þarf tækið á milli staða.Hvaða leið sem þú velur heldurðu lögbundnum réttindum þínum gagnvart Nova sem seljanda.
Hvert get ég farið með græjuna í viðgerð?
Hér finnurðu yfirlit yfir viðgerðaraðila helstu vörumerkja sem við seljum.
| Vörumerki | Viðgerðaraðili |
| Apple | Epli, Laugavegi 182, 105 Reykjavík. Sími: 512-1300 |
| Samsung | Tæknivörur, Víkurhvarfi 4, Kópavogi. Opið virka daga 09:00–16:00 |
| Xiaomi og Redmi | Mi búðin, Ármúla 21, 108 Reykjavík |
| Google Pixel | Verslanir Nova |
| PlayStation | Verslanir Nova |
| Nintendo | Ormsson ehf., Ármúla 18, Reykjavík. Sími: 530-2830 |
| Sony | Ofar verkstæði, Köllunarklettsvegur 8, 104 Reykjavík. Sími: 569-7777 |
| Garmin | Garmin á Íslandi, Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi. Sími: 577-6000 |
| Ultrahuman | Verslanir Nova |
|
Nokia / HMD |
Verslanir Nova |
|
Bose |
Ofar verkstæði, Köllunarklettsvegur 8, 104 Reykjavík. Sími: 569-7777 |
Hvað þarf ég að gera áður en ég fer með tækið í viðgerð?
Áður en þú afhendir tæki í viðgerð mælum við með að þú:- Takir öryggisafrit af myndum, tengiliðum og öðrum mikilvægum gögnum.
- Fjarlægir SIM kort og persónulega fylgihluti eftir því sem við á.
- Aftengir Find My iPhone eða sambærilegar aðgangslæsingar ef viðgerðaraðili óskar eftir því.
- Hafir kaupnótu eða upplýsingar um kaupin tiltækar.