Algengar spurningar um SjálfsVörn
Hvað er SjálfsVörn?
Með SjálfsVörn hjá Nova hefur öryggi heimilisins aldrei verið ódýrara og snjallara! Ekkert startgjald, uppsetning innifalin, enginn binditími, hágæða heimakerfi og heimilið beintengt við símann.
Við erum að tala um snjallt heimavarnarkerfi frá Ajax sem þú getur sniðið að þínu höfði.
En hvar á að byrja?
Við erum búin að taka saman nokkrar samsetningar hér eftir stærð húsnæðis sem er gott að byrja á, þú getur svo bætt við eða fækkað skynjurum og sniðið SjálfsVörnina þannig að hún smellpassi í þitt húsnæði.
Aðal vörurnar sem við mælum með að hafa eru reykskynjari, vatnsskynjari, hurðaskynjari, hreyfiskynjari með myndavél og svo auðvitað stjórnstöðin sem heldur utan um alla skynjarana og sendir helstu upplýsingar beint í Ajax appið til þín.
Hvernig fæ ég SjálfsVörn?
Þú byrjar á því að smella þér inná nova.is/sjalfsvorn.
Þar sérðu tvær mögulegar samsetningar af SjálfsVörn sem við mælum með sem góðum grunni fyrir mismunandi stærðir af heimili.
Ekki viss hvaða SjálfsVörn hentar þér?
Við erum búin að taka saman nokkrar samsetningar hér eftir stærð húsnæðis sem er gott að byrja á.
Hver er munurinn á Ajax öryggiskerfi og öðru snjallöryggi?
SjálfsVörn hjá Nova samanstendur af öryggisvörum frá Ajax. Ajax vörurnar hafa hlotið Grade 2 örygggisvottun, sem þýðir að kerfið stenst helstu nútíma öryggiskröfur.
Hverju get ég stjórnað í Ajax appinu í símanum mínum?
Í Ajax appinu sérðu yfirlit yfir alla skynjara sem eru hjá þér og getur stjórnað því hvenær er kveikt og slökkt á kerfinu.
Ég á ekki snjallsíma, verð ég að vera með appið?
Það er að sjálfsögðu hægt að vera með SjálfsVörn án þess að vera með snjallsíma. Þá eru ýmsar vörur í boði.
Hvernig greiði ég fyrir SjálfsVörn?
SjálfsVörn er fyrirframgreidd með kredit- eða debetkorti.
Getur einhver komið og sett allt upp fyrir mig?
Heldur betur, uppsetning er nefnilega innifalin!
Get ég verið með SjálfsVörn hvar sem er á landinu?
Já auðvitað! Þú getur fengið búnaðinn sendan beint heim að dyrum.
Get ég tengt búnaðinn án þess að fá aðstoð?
Þú getur það og það er lítið mál, en við mælum eindregið með því að nýta þér þann kost að uppsetning er innifalin.
Getur hver sem er verið með SjálfsVörn?
Já ekki spurning, það geta allir verið með snjallt hágæða öryggiskerfi.