Þessi grein leiðir þig í gegnum helstu skref til að greina bilanir á 4.5G ráter.
Lýsing á vandamáli
Algeng einkenni eru að nettenging dettur út, hraðinn er óstöðugur eða ráter nær ekki sambandi við sendi.
Einkenni
-
Engin internettenging þrátt fyrir að ráter sé kveiktur
-
WiFi virkt en nettenging óstöðug
-
Ljós á ráter gefa til kynna villu eða veik tengsl
-
Lítill hraði í hraðaprófi
Grunnatriði sem þarf að athuga
- Eru reikningar greiddir, áskriftarleið virk og gagnamagn ekki búið? Þetta má sjá í Stólnum í Nova appinu eða með því að hafa samband á spjallinu á nova.is.
- Hefurðu prófað að slökkva og kveikja á ráter og nettækjum? Byrjaðu alltaf á endurræsingu.
- Er ráterinn staðsettur við glugga og snýr í átt að næsta sendi?
Ráðlagðar athuganir og prófanir
-
Leyfðu ráternum að standa óhreyfðum í glugga í 2–5 mínútur svo hann geti tengst réttri tíðni.
-
Notaðu Speedtest.net by Ookla appið (veldu Nova server) til að prófa hraða á mismunandi stöðum.
-
Ef þú notar VPN, prófaðu að slökkva á henni og endurræsa ráter og tæki.
Merking ljósanna á ráter
Power
-
Kveikt: Ráter í gangi
-
Slökkt: Ráter slökktur eða ekki í sambandi við rafmagn
Status
-
Slökkt: Engin nettenging – athugaðu reikninga, gagnamagn og staðsetningu
-
Kveikt: Nettenging virk
WiFi
-
Kveikt: Þráðlaust net virkt
-
Slökkt: WiFi slökkt – þarf að kveikja í stillingum
LAN
-
Kveikt: Tæki tengd með kapli
-
Blikkandi: Tengingar í gangi
-
Slökkt: Engin tæki tengd með kapli
Signal
-
Því fleiri ljós sem loga, því betra samband
-
Slökkt: Engin tenging
Mode
-
Ljósblátt: LTE/4G
-
Dökkblátt: 3G
-
Gult: 2G
-
Grænt: WAN port
-
Rautt: Villustilling – athuga APN stillingar
Ábendingar og viðbótarefni
-
Prófaðu mismunandi staðsetningar í húsinu áður en þú setur ráterinn endanlega upp.
-
Ef straumbreyti virkar ekki skaltu prófa aðra innstungu. Ef það leysir ekki vandann, komdu í næstu Nova verslun og fáðu nýjan straumbreyti.
Fyrirvari
Þessi leiðbeining er almenn og hentar til að greina algengar bilanir. Ef vandinn er flóknari getur þurft frekari aðstoð frá þjónustuveri.