Skip to content
Íslenska - Ísland
  • There are no suggestions because the search field is empty.

Bilanagreining á 4.5G ráter

Þessi grein leiðir þig í gegnum helstu skref til að greina bilanir á 4.5G ráter.

Lýsing á vandamáli

Algeng einkenni eru að nettenging dettur út, hraðinn er óstöðugur eða ráter nær ekki sambandi við sendi.

Einkenni

  • Engin internettenging þrátt fyrir að ráter sé kveiktur

  • WiFi virkt en nettenging óstöðug

  • Ljós á ráter gefa til kynna villu eða veik tengsl

  • Lítill hraði í hraðaprófi

Grunnatriði sem þarf að athuga

  • Eru reikningar greiddir, áskriftarleið virk og gagnamagn ekki búið? Þetta má sjá í Stólnum í Nova appinu eða með því að hafa samband á spjallinu á nova.is.
  • Hefurðu prófað að slökkva og kveikja á ráter og nettækjum? Byrjaðu alltaf á endurræsingu.
  • Er ráterinn staðsettur við glugga og snýr í átt að næsta sendi?

Ráðlagðar athuganir og prófanir

  • Leyfðu ráternum að standa óhreyfðum í glugga í 2–5 mínútur svo hann geti tengst réttri tíðni.

  • Notaðu Speedtest.net by Ookla appið (veldu Nova server) til að prófa hraða á mismunandi stöðum.

  • Ef þú notar VPN, prófaðu að slökkva á henni og endurræsa ráter og tæki.

Merking ljósanna á ráter

Power

  • Kveikt: Ráter í gangi

  • Slökkt: Ráter slökktur eða ekki í sambandi við rafmagn

Status

  • Slökkt: Engin nettenging – athugaðu reikninga, gagnamagn og staðsetningu

  • Kveikt: Nettenging virk

WiFi

  • Kveikt: Þráðlaust net virkt

  • Slökkt: WiFi slökkt – þarf að kveikja í stillingum

LAN

  • Kveikt: Tæki tengd með kapli

  • Blikkandi: Tengingar í gangi

  • Slökkt: Engin tæki tengd með kapli

Signal

  • Því fleiri ljós sem loga, því betra samband

  • Slökkt: Engin tenging

Mode

  • Ljósblátt: LTE/4G

  • Dökkblátt: 3G

  • Gult: 2G

  • Grænt: WAN port

  • Rautt: Villustilling – athuga APN stillingar

Ábendingar og viðbótarefni

  • Prófaðu mismunandi staðsetningar í húsinu áður en þú setur ráterinn endanlega upp.

  • Ef straumbreyti virkar ekki skaltu prófa aðra innstungu. Ef það leysir ekki vandann, komdu í næstu Nova verslun og fáðu nýjan straumbreyti.

Fyrirvari

Þessi leiðbeining er almenn og hentar til að greina algengar bilanir. Ef vandinn er flóknari getur þurft frekari aðstoð frá þjónustuveri.