Mi Box S er sjónvarpsbox sem tengist við sjónvarp með HDMI snúru og gerir þér kleift að sækja og nota öpp eins og Netflix, YouTube, Spotify og önnur öpp í Google Play Store.
Uppsetning á Mii Box S
1. Tengdu boxið
Byrjaðu á að tengja Mi Box S við sjónvarpið.
- Tengdu HDMI snúru úr Mi Box S yfir í HDMI tengi á sjónvarpinu.
- Stingdu Mi Box S í rafmagn.
- Tengdu Ethernet snúru ef þú vilt nota netsnúru og boxið/aðstæður styðja það. Annars er hægt að nota Wi-Fi.
2. Kveiktu á sjónvarpinu og veldu rétt input
- Kveiktu á sjónvarpinu.
- Veldu rétt HDMI input með fjarstýringu sjónvarpsins.
- Mi Box S uppsetningarskjárinn ætti að birtast á skjánum.
Ef ekkert birtist skaltu athuga hvort rétt HDMI input sé valið.
3. Tengdu boxið við internetið
Í fyrstu uppsetningu þarftu að velja grunnstillingar.
- Veldu tungumál.
- Veldu svæði.
- Tengdu boxið við Wi-Fi.
- Sláðu inn Wi-Fi lykilorð ef beðið er um það.
4. Skráðu þig inn á Google reikning
Til að geta sótt öpp úr Google Play Store þarf að skrá sig inn með Google reikningi.
- Veldu að skrá þig inn með Google account.
- Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
- Hægt er að nota síma til að flýta fyrir uppsetningu ef sá valmöguleiki birtist.
5. Farðu yfir grunnstillingar
Eftir innskráningu getur þú stillt helstu atriði.
- Dagsetning og tími stillast yfirleitt sjálfkrafa.
- Veldu hvort þú viljir kveikja eða slökkva á Google Assistant.
- Fylgdu öðrum leiðbeiningum sem birtast á skjánum.
Sækja öpp
1. Opnaðu Google Play Store
- Farðu í Google Play Store á Mi Box S.
- Opnaðu leitina.
2. Finndu appið
Leitaðu að appinu sem þú vilt setja upp, til dæmis:
- Netflix
- YouTube
- Spotify
3. Settu appið upp
- Veldu appið.
- Smelltu á Install.
- Bíddu þar til niðurhali og uppsetningu lýkur.
4. Opnaðu appið
Þegar uppsetningu er lokið getur þú opnað appið beint eða fundið það á forsíðu boxins.
Skrá inn í öpp
Flest streymisöpp krefjast þess að þú skráir þig inn áður en hægt er að nota þau.
- Opnaðu appið.
- Veldu innskráningu.
- Skráðu þig inn með aðganginum þínum.
- Í sumum öppum er hægt að nota síma, QR kóða eða vefslóð til að flýta fyrir innskráningu.
- Þegar innskráningu er lokið getur þú byrjað að nota appið.
Fjarstýring
Fjarstýringin parast oft sjálfkrafa við Mi Box S í fyrstu uppsetningu.
Ef fjarstýringin virkar ekki:
- Athugaðu hvort rafhlöðurnar séu í lagi.
- Farðu í Settings.
- Veldu Remotes.
- Veldu Pair new remote.
- Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
Einföld bilanaleit
Engin mynd kemur á sjónvarpið
Prófaðu eftirfarandi:
- Athugaðu hvort sjónvarpið sé stillt á rétt HDMI input.
- Prófaðu annað HDMI tengi á sjónvarpinu.
- Athugaðu hvort HDMI snúran sé rétt tengd.
- Endurræstu Mi Box S með því að taka það úr sambandi í um 10 sekúndur og stinga því svo aftur í samband.
Netið virkar ekki
Ef boxið nær ekki netsambandi:
- Athugaðu hvort Wi-Fi lykilorðið sé rétt.
- Endurræstu routerinn.
- Endurræstu Mi Box S.
- Farðu í Settings og tengdu boxið aftur við Wi-Fi.
- Prófaðu Ethernet tengingu ef hún er í boði.
Tækið er hægt
Ef Mi Box S er orðið hægt eða höktir:
- Endurræstu boxið.
- Lokaðu öppum sem eru í gangi í bakgrunni.
- Athugaðu hvort uppfærslur séu í boði í Settings.
- Fjarlægðu öpp sem eru ekki lengur í notkun ef geymslupláss er lítið.
Fjarstýringin virkar ekki
Prófaðu eftirfarandi:
- Skiptu um rafhlöður.
- Athugaðu hvort ekkert sé að hindra sambandið við boxið.
- Paraðu fjarstýringuna aftur:
- Farðu í Settings
- Veldu Remotes
- Veldu Pair new remote
App virkar ekki
Ef app opnast ekki eða virkar illa:
- Lokaðu appinu og opnaðu það aftur.
- Endurræstu Mi Box S.
- Athugaðu hvort appið þurfi uppfærslu.
- Skráðu þig út og aftur inn í appið.
- Ef ekkert virkar skaltu eyða appinu og setja það upp aftur.
Ekkert hljóð
Ef mynd kemur en ekkert hljóð heyrist:
- Athugaðu hvort hljóðið sé ekki á mute á sjónvarpinu.
- Hækkaðu hljóðið á sjónvarpinu og Mi Box S.
- Farðu í Settings → Sound og skoðaðu hljóðstillingar.
- Prófaðu annað HDMI tengi.
- Endurræstu boxið.
Endurstilla Mi Box S
Ef ekkert annað virkar er hægt að endurstilla tækið.
Athugið: Endurstilling eyðir stillingum og innskráningum úr tækinu. Eftir reset þarf að setja boxið upp aftur.
Til að endurstilla:
- Farðu í Settings.
- Veldu Device Preferences.
- Veldu Reset.
- Staðfestu endurstillingu.
- Fylgdu uppsetningarferlinu aftur þegar tækið kveikir á sér.
Samantekt
Til að byrja að nota Mi Box S þarf að tengja boxið við sjónvarp og rafmagn, velja rétt HDMI input, tengjast interneti og skrá sig inn með Google reikningi. Eftir það er hægt að sækja öpp í Google Play Store, skrá sig inn í þau og byrja að horfa.