Greinar um þetta efni

Hvað er eero Plus?

eero Plus er viðbótarþjónusta fyrir eero net sem bætir við auknu öryggi, foreldraeftirliti og verkfærum til að stjórna heimilisnetinu betur. Hún hentar sérstaklega heimilum sem vilja meiri vernd gegn hættulegum vefsíðum, betri stjórn á netnotkun barna og einfaldari leið til að halda heimilisnetinu öruggu.

Hvað fylgir eero Plus?

Aukið öryggi á netinu

eero Plus getur hjálpað til við að verja heimilisnetið gegn hættulegum síðum og netógnum áður en þær valda vandræðum. Þjónustan inniheldur meðal annars Active Threat Protection, sem hjálpar til við að stöðva tilraunir til að opna hættulegar síður. 

Foreldraeftirlit

Með eero Plus er hægt að stjórna netnotkun barna með einföldum hætti. Til dæmis er hægt að:

  • setja efnisfiltera
  • loka á ákveðnar tegundir efnis
  • loka á ákveðin öpp eða síður
  • setja netáætlanir fyrir tæki eða heimilið
  • pásað netið tímabundið á völdum tækjum 

Auglýsinga- og rakningarvörn

eero Plus getur hjálpað til við að loka á auglýsingar, pop-up glugga og rakningarforrit á netinu. Þetta getur gert vafraupplifunina þægilegri á mörgum tækjum heimilisins. 

Internet backup

Internet backup gerir eero kleift að nota aðra þráðlausa tengingu, til dæmis hotspot úr síma, ef aðaltengingin dettur út. Þetta er hugsað sem varaúrræði til að halda heimilinu tengdu þegar truflun verður á netinu. 

Fleiri öryggisverkfæri

eero Plus getur einnig innihaldið verkfæri eins og VPN, lykilorðastjóra og malware-vörn, eftir því hvaða þjónusta er í boði hjá þjónustuveitanda.

Malwarebytes, 1Password og VPN fylgja með

Með eero Plus fylgja einnig áskriftir að öryggis- og persónuverndarverkfærum sem hjálpa til við að verja tæki og aðgangsupplýsingar:

  • Malwarebytes – hjálpar til við að verja tæki gegn malware, vírusum og öðrum netógnum.
  • 1Password – lykilorðastjóri sem hjálpar þér að geyma sterk og örugg lykilorð á einum stað.
  • VPN powered by Guardian – dulkóðar netumferð og hjálpar til við að verja gögnin þín, sérstaklega þegar þú notar opin eða ókunn WiFi net.

Þetta er hluti af eero Plus og bætir við þá vernd sem eero veitir á heimilisnetinu sjálfu.

Fyrir hvern hentar eero Plus?

eero Plus hentar sérstaklega vel fyrir:

  • fjölskyldur sem vilja foreldraeftirlit og efnisstýringu
  • heimili með mörg nettengd tæki
  • fólk sem vill meiri vernd gegn hættulegum síðum og netógnum
  • notendur sem vilja varaúrræði ef nettengingin dettur út
  • þá sem vilja stjórna öryggi og netnotkun á einfaldan hátt í eero appinu

Er eero Plus nauðsynlegt til að nota eero?

Nei. eero virkar sem WiFi kerfi án eero Plus. eero Plus er viðbót fyrir þá sem vilja meiri stjórn, aukið öryggi og fleiri eiginleika fyrir heimilisnetið.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg