Greinar um þetta efni

eero vs. venjulegur router

Venjulegur router sendir WiFi frá einum stað á heimilinu. eero er mesh WiFi kerfi sem notar eina aðaleiningu og, ef þarf, fleiri eero einingar til að dreifa WiFi betur um heimilið.

Markmiðið með eero er að gefa stöðugra og jafnara WiFi, sérstaklega á heimilum þar sem merki er lélegt í ákveðnum herbergjum, á milli hæða eða þegar mörg tæki eru tengd í einu.


Hver er munurinn?

Venjulegur router

Venjulegur router er oft einn punktur sem reynir að ná yfir allt heimilið. Það getur virkað vel í minni rýmum, en signal getur veikst eftir því sem þú ferð lengra frá routernum eða ef veggir, gólf eða önnur truflun er á milli.

Algeng einkenni eru:

  • WiFi virkar vel nálægt routernum en illa í öðrum herbergjum
  • dauðir punktar þar sem WiFi dettur út
  • hægara net þegar margir eru tengdir
  • vandamál í bílskúr, kjallara, efri hæð eða út í enda íbúðar

eero

eero er mesh WiFi kerfi. Það þýðir að fleiri eero einingar geta unnið saman til að búa til eitt sameiginlegt WiFi net um heimilið. Mesh WiFi notar aðalpunkt og auka WiFi punkta sem vinna saman til að bæta dreifingu.

eero notar TrueMesh tækni sem hjálpar eero einingum að stýra tengingum og leysa WiFi vandamál áður en þau hafa mikil áhrif á upplifunina.


Einföld útskýring

Venjulegur router er eins og eitt sterkt ljós í einu herbergi sem á að lýsa upp allt húsið.

eero er meira eins og að setja ljós á fleiri staði, þannig að hvert herbergi fær betri birtu. Þú ert ekki að treysta á einn punkt til að ná yfir allt heimilið. 


Kostir eero samanborið við venjulegan router

Betri dreifing á WiFi

Með fleiri eero einingum er hægt að dreifa WiFi betur um heimilið. Þetta hentar sérstaklega vel ef heimilið er stórt, á fleiri en einni hæð eða ef signal nær illa í ákveðin rými.

Stöðugra samband

eero einingar vinna saman og hjálpa tækjunum þínum að tengjast betri leið í gegnum netið. Þetta getur minnkað líkur á slitróttu sambandi og veikara merki.

Eitt WiFi net

Þú þarft ekki að skipta handvirkt á milli mismunandi neta eða kastara. eero býr til eitt samræmt WiFi net fyrir heimilið.

Einföld uppsetning og stjórnun

eero appið leiðir notandann í gegnum uppsetningu og er notað til að stjórna netinu. Í appinu er hægt að sjá stöðu netsins, tengd tæki, búa til gestanet, stilla prófíla, setja WiFi pásur og stjórna netstillingum. 

Hentar vel fyrir mörg tæki

Á heimilum þar sem margir eru að streyma, vinna heima, spila tölvuleiki eða nota snjalltæki getur eero verið betri lausn en einn hefðbundinn router. Fjöldi tækja, stærð heimilis og notkun hafa áhrif á hvaða uppsetning hentar best. 

Sjálfvirkar uppfærslur og öryggi

eero tæki fá reglulegar hugbúnaðaruppfærslur sem hjálpa til við að halda kerfinu öruggu og uppfærðu.


Hvenær er eero betri kostur?

eero hentar sérstaklega vel ef:

  • WiFi nær illa í ákveðin herbergi
  • heimilið er á fleiri en einni hæð
  • margir eru tengdir á sama tíma
  • þú ert með snjalltæki, myndavélar, snjallperur eða önnur tengd tæki
  • þú vinnur heima og þarft stöðugt samband
  • þú vilt einfalda stjórnun í appi
  • þú vilt geta bætt við fleiri einingum síðar

Algengar spurningar

Er eero bara router?

Nei. eero getur virkað sem router, en styrkurinn liggur í því að það er mesh WiFi kerfi sem getur notað fleiri einingar til að dreifa WiFi betur.

Þarf ég fleiri en eina eero einingu?

Það fer eftir stærð heimilis, skipulagi, fjölda hæða, byggingarefnum og fjölda tengdra tækja. Minni heimili geta stundum verið með eina einingu, en stærri heimili eða heimili með dauða punkta þurfa oft fleiri.

Get ég stjórnað netinu sjálf/ur?

Já. Í eero appinu er hægt að sjá tengd tæki, stjórna netinu, búa til gestanet og setja upp einfaldar stillingar.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg