Greinar um þetta efni

Stjórnun tækja (Hvaða tæki get ég séð?)

Í eero appinu geturðu séð hvaða tæki eru tengd við netið þitt, hvaða tæki hafa verið tengd áður og stjórnað internetaðgangi fyrir ákveðin tæki eða hópa tækja.

Þetta er gagnlegt ef þú vilt fá betri yfirsýn yfir heimilisnetið, finna tæki sem þú þekkir ekki eða setja reglur um nettíma.

Skoða tæki á netinu

  1. Opnaðu eero appið
  2. Farðu á forsíðuna eða í Devices
  3. Þar sérðu lista yfir tæki á netinu

Í appinu geturðu séð bæði tengd tæki og ótengd tæki.

6979f47e-a07c-4953-9f97-fb90f1b44c7a.jpeg

 

Tengd tæki

Tengd tæki eru tæki sem eru virk á netinu akkúrat núna.

Þetta geta til dæmis verið:

  • símar
  • tölvur
  • sjónvörp
  • leikjatölvur
  • snjalltæki

Þegar þú velur tæki í appinu geturðu séð nánari upplýsingar, til dæmis hvaða eero tæki það tengist, hvort það sé tengt með WiFi eða snúru og upplýsingar um gagnanotkun.

Ótengd tæki

Ótengd tæki eru tæki sem hafa tengst netinu áður en eru ekki virk í augnablikinu.

Tæki getur verið ótengt ef það er:

  • slökkt
  • ekki heima
  • utan sambands
  • ekki að nota WiFi í augnablikinu
  • búið að missa samband tímabundið

Þetta getur hjálpað þér að sjá hvort tæki sem þú átt von á að sé tengt hafi dottið út af netinu.

Breyta nafni á tæki

Sum tæki birtast með óskýrum eða tæknilegum nöfnum. Þá getur verið gott að breyta nafninu í eitthvað sem þú þekkir betur.

  1. Veldu tækið í eero appinu
  2. Ýttu á nafn tækisins eða Edit
  3. Skrifaðu nýtt nafn
  4. Vistaðu breytinguna

Dæmi um skýr nöfn:

  • iPhone hjá Önnu
  • PlayStation
  • Sjónvarp í stofu
  • Vinnutölva
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg