Greinar um þetta efni

Öryggi og persónuvernd í eero appinu

Í eero appinu getur þú stjórnað ýmsum öryggis-, persónuverndar- og foreldraeftirlitsstillingum fyrir heimilisnetið þitt. Þar getur þú meðal annars séð hvað er að gerast á netinu, lokað á ákveðið efni, minnkað auglýsingar og sett upp varaleið ef netið dettur út.

Sumir fídusar geta verið hluti af eero Plus eða eero Secure og því fer það eftir þjónustunni þinni hvaða valmöguleikar birtast í appinu. eero appið er hugsað sem einföld leið til að setja upp, fylgjast með og stjórna heimilisnetinu beint úr símanum. 

 


 

Hvar finn ég þessar stillingar?

  1. Opnaðu eero appið
  2. Farðu í Settings
  3. Veldu Security & Privacy eða viðeigandi öryggis-/áskriftarflipa í appinu

Heiti og staðsetning getur verið aðeins mismunandi eftir útgáfu appsins og hvaða eero þjónustu þú ert með.

 


 

Helstu fídusar og hvað þeir gera

Advanced Security / Active Threat Protection

Þessi fídus hjálpar til við að verja heimilisnetið gegn þekktum netógnum.

Þegar hann er virkur getur eero hjálpað til við að:

  • loka á aðgang að þekktum hættulegum vefsíðum
  • minnka líkur á malware eða skaðlegri umferð
  • vernda tæki á heimilinu betur á meðan þau eru tengd eero netinu

Þetta er gagnlegt ef þú vilt auka öryggi heimilisnetsins án þess að þurfa að setja upp flóknar stillingar sjálf/ur.

 


 

Ad Blocking

Ad Blocking hjálpar til við að loka á margar auglýsingar og rekjara áður en þeir hlaðast inn á tækin þín.

Það getur hjálpað til við:

  • færri auglýsingar á vefsíðum
  • minni truflun við vafur
  • betri upplifun á mörgum tækjum á heimilinu

Athugaðu að engin auglýsingavörn nær að loka á allar auglýsingar, sérstaklega ekki inni í öllum öppum eða streymisþjónustum.

 


 

Content Filters

Content Filters gera þér kleift að stjórna hvaða efni má opna á netinu. Þetta er sérstaklega gagnlegt fyrir fjölskyldur sem vilja einfalt foreldraeftirlit.

Þú getur til dæmis notað Content Filters til að:

  • sía efni eftir aldri
  • loka á ákveðna efnisflokka
  • takmarka aðgang að tilteknum öppum eða þjónustum
  • leyfa eða loka á ákveðnar vefsíður

Þetta getur hentað vel fyrir börn, unglinga eða tæki sem eiga aðeins að hafa takmarkaðan aðgang að internetinu.

 


 

Block Apps

Með Block Apps getur þú lokað á aðgang að ákveðnum öppum eða þjónustum á völdum tækjum eða prófílum.

Dæmi um notkun:

  • loka á samfélagsmiðla á ákveðnum tímum
  • takmarka aðgang að myndbandaöppum
  • hjálpa til við skjátíma og rútínu barna

Þetta virkar best þegar tækin eru sett í Profiles, til dæmis „Krakkar“, „Leikjatölvur“ eða „Heimaskrifstofa“.

 


 

Block and Allow Websites

Með þessum fídus getur þú stjórnað aðgangi að ákveðnum vefsíðum.

Þú getur:

  • lokað á tiltekna vefsíðu
  • leyft vefsíðu sem annars gæti lent í síu
  • stillt þetta fyrir ákveðin tæki eða prófíla

Þetta er gagnlegt þegar þú vilt meiri stjórn en almennir efnisflokkar bjóða upp á.

 


 

Activity History

Activity History sýnir yfirlit yfir virkni á netinu.

Þar getur þú séð upplýsingar eins og:

  • hvaða tæki nota mest gagnamagn
  • virkni eftir tækjum eða prófílum
  • öryggisatvik eða lokaða virkni, ef öryggisfídusar eru virkir

Þetta getur hjálpað þér að skilja betur hvernig netið er notað á heimilinu. Til dæmis ef netið virðist hægt geturðu séð hvort eitthvað tæki sé að nota óvenju mikið gagnamagn.

 


 

Internet Backup / Hotspot Backup

Internet Backup getur hjálpað eero netinu að halda áfram að virka ef aðaltengingin dettur út.

Þá getur eero notað varatengingu, til dæmis:

  • hotspot úr síma
  • aðra þráðlausa tengingu sem hefur verið sett upp sem backup

Þetta getur verið gagnlegt ef þú vinnur heima, ert með snjalltæki sem þurfa stöðuga tengingu eða vilt hafa varaleið ef ljósleiðaratengingin rofnar.

Athugaðu að hraði og stöðugleiki fer eftir varatengingunni sem er notuð.

 


 

DDNS

DDNS stendur fyrir Dynamic DNS. Þetta er meira „advanced“ stilling og hentar helst notendum sem þurfa að tengjast heimilisnetinu sínu utan frá.

Dæmi um notkun:

  • aðgangur að heimavél
  • fjarvinnslulausnir
  • myndavélakerfi eða sérhæfður búnaður
  • þjónar eða önnur tæki sem þarf að nálgast utan heimilis

Flestir viðskiptavinir þurfa ekki að breyta þessari stillingu.

 


Algengar spurningar

Af hverju sé ég ekki alla þessa fídusa í appinu?

Það getur verið vegna þess að sumir fídusar krefjast eero Plus eða eero Secure. Það getur líka farið eftir útgáfu appsins, eero búnaðinum og þjónustunni sem þú ert með hjá Nova.

 

Lokar Ad Blocking á allar auglýsingar?

Nei, ekki allar. Það lokar á margar auglýsingar og rekjara, en sumar auglýsingar geta samt birst, sérstaklega inni í ákveðnum öppum eða þjónustum.

 

Er Content Filters það sama og að slökkva á internetinu?

Nei. Content Filters sía ákveðið efni. Ef þú vilt stöðva netaðgang tímabundið fyrir tæki eða prófíl notarðu Pause eða Schedules í eero appinu.

 

Þarf ég að nota DDNS?

Líklega ekki. DDNS er aðallega fyrir notendur sem þurfa að tengjast ákveðnum tækjum eða þjónustum heima hjá sér utan frá.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg