Greinar um þetta efni

Hraðapróf í eero appinu

Með hraðaprófi í eero appinu getur þú séð hvaða internethraða eero netið þitt fær. Þetta er gagnlegt ef netið virðist hægt, myndsímtöl hökta eða streymi fer að stoppa.

Hvar finn ég hraðaprófið?

  1. Opnaðu eero appið.
  2. Farðu í Internet eða Activity.
  3. Veldu Speed test.
  4. Ýttu á Run speed test ef þú vilt keyra nýtt próf.
  5. Bíddu á meðan prófið klárast og skoðaðu niðurstöðurnar.

Hvað sýnir hraðaprófið?

Hraðaprófið sýnir yfirleitt tvo hraða:

Download
Hraðinn sem þú notar þegar þú vafrar, streymir, horfir á myndbönd eða hleður niður efni.

Upload
Hraðinn sem þú notar þegar þú sendir gögn frá þér, til dæmis í myndsímtölum, þegar þú sendir skrár eða notar skýjaþjónustur.

Af hverju er hraðinn annar en í símanum mínum?

Hraðaprófið í eero appinu mælir hraðann sem kemur inn á eero netið. Hraðapróf í síma eða tölvu mælir hraðann frá því tæki yfir WiFi.

Þess vegna geta niðurstöðurnar verið mismunandi. WiFi hraði getur breyst eftir því:

  • hvar tækið er staðsett
  • hversu langt það er frá eero
  • hvort veggir eða gólf séu á milli
  • hversu mörg tæki eru að nota netið
  • hvort tækið sjálft styður háan hraða

Ef hraðinn virðist lágur

Prófaðu þessi skref:

  1. Taktu nýtt hraðapróf í eero appinu.
  2. Endurræstu eero og ljósleiðaraboxið eða netbúnaðinn.
  3. Bíddu í nokkrar mínútur og prófaðu aftur.
  4. Athugaðu hvort mörg tæki séu að streyma, spila eða hlaða niður á sama tíma.
  5. Prófaðu að færa tækið nær eero ef vandamálið er bara á einu tæki.
  6. Hafðu samband við Nova ef hraðinn er áfram mun lægri en þú átt von á.
Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg