Þú getur endurræst eero netið beint í eero appinu. Þetta getur hjálpað ef netið er hægt, tæki detta út eða eitthvað virkar ekki eins og það á að gera.
Svona endurræsir þú netið
- Opnaðu eero appið.
- Farðu í Settings neðst í hægra horninu.
- Veldu Advanced settings.
- Veldu Restart network.
- Staðfestu að þú viljir endurræsa netið.
Netið fer tímabundið niður á meðan eero endurræsir sig. Það getur tekið nokkrar mínútur þar til allt er komið aftur í samband.
Gott að hafa í huga
Öll tæki á heimilinu missa netsamband á meðan endurræsing stendur yfir. Það á við um síma, tölvur, sjónvörp, snjalltæki og önnur tæki sem eru tengd við WiFi.
Ef netið lagast ekki
Prófaðu að taka eero úr sambandi við rafmagn í um 30 sekúndur og stinga honum svo aftur í samband. Ef vandamálið heldur áfram getur verið gott að endurræsa ljósleiðaraboxið eða hafa samband við Nova.