Greinar um þetta efni

eero Hotspot Backup / varaleið

Hvað er eero Hotspot Backup?

eero Hotspot Backup er varaleið fyrir internetið þitt ef aðaltengingin dettur út.

Þá getur eero netið tengst annarri þráðlausri nettengingu, til dæmis hotspot úr síma, og haldið WiFi netinu gangandi á meðan bilun eða rof er á aðaltengingunni.

Þetta getur verið gagnlegt ef þú þarft að halda sambandi fyrir vinnu, myndsímtöl, snjalltæki eða annað sem má ekki detta alveg út.

Hvernig virkar þetta?

Venjulega notar eero aðaltenginguna þína frá Nova.

Ef sú tenging fer niður getur eero skipt yfir á varatengingu sem þú hefur sett upp áður, til dæmis:

  • hotspot úr farsíma
  • annað WiFi net
  • varanet sem er tiltækt á staðnum

Þegar aðaltengingin kemur aftur inn fer eero aftur að nota hana.

Hvað þarf ég að hafa í huga?

Hotspot Backup er ekki það sama og venjuleg ljósleiðara- eða fastanetstenging. Hún notar þá tengingu sem þú velur sem varaleið.

Það þýðir að:

  • hraðinn getur verið lægri en venjulega
  • gagnamagn getur farið eftir farsímaáskriftinni eða varanetinu
  • myndstreymi, stór niðurhöl og leikjaspilun geta virkað verr en á aðaltengingunni
  • gæði tengingar fara eftir staðsetningu og styrk varatengingarinnar

Hvernig set ég upp Hotspot Backup?

  1. Opnaðu eero appið.
  2. Farðu í Settings.
  3. Veldu Internet Backup eða Backup Internet.
  4. Veldu hvaða WiFi net eða hotspot á að nota sem varaleið.
  5. Sláðu inn lykilorð ef þess þarf.
  6. Vistaðu stillingarnar.

Hvenær notar eero varaleiðina?

eero notar varaleiðina þegar aðaltengingin fer niður og varanetið sem þú hefur valið er tiltækt.

Þú þarft því að passa að hotspot eða varanetið sé virkt þegar á þarf að halda.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg