Greinar um þetta efni

Fljótlegar lausnir ef eero netið virkar ekki rétt

Ef netið er hægt, tæki detta út eða eero appið sýnir að eitthvað sé ekki í lagi, geturðu prófað þessi skref áður en þú hefur samband við þjónustuver.

1. Endurræstu eero netið

Ef eero netið er online en virkar óeðlilega, til dæmis ef netið er hægt eða tæki detta reglulega út, getur hjálpað að endurræsa netið.

Svona gerirðu:

  1. Opnaðu eero appið.
  2. Farðu í Settings.
  3. Veldu Advanced settings.
  4. Veldu Restart network.
  5. Bíddu í nokkrar mínútur á meðan netið kemur aftur upp.

Athugið: Á meðan endurræsingu stendur verður WiFi tímabundið óvirkt.

2. Ef aðeins eitt tæki er í vandræðum

Ef tölva, sími, sjónvarp eða annað tæki er eina tækið sem á í vandræðum skaltu byrja á að skoða tækið í eero appinu.

Svona gerirðu:

  1. Opnaðu eero appið.
  2. Farðu í Devices.
  3. Finndu tækið sem er í vandræðum.
  4. Athugaðu hvort tækið sé online eða offline.
  5. Prófaðu að slökkva og kveikja á WiFi á tækinu.
  6. Prófaðu að endurræsa tækið sjálft.

Ef tækið nær enn ekki að tengjast getur verið gott að gleyma WiFi netinu á tækinu og tengjast því aftur með lykilorðinu.

3. Athugaðu hvort eero appið sýni viðvörun

Ef eero appið sýnir viðvörun eða skilaboð um vandamál skaltu lesa þau áður en þú breytir stillingum.

Viðvörunin getur oft sagt beint hvað er að, til dæmis hvort netið sé niðri, hvort eero tæki sé offline eða hvort tenging sé óstöðug.

4. Notaðu Troubleshooting í eero appinu

eero appið er með innbyggða bilanaleit sem getur hjálpað við algeng vandamál.

Svona finnurðu hana:

  1. Opnaðu eero appið.
  2. Farðu í Settings.
  3. Veldu Troubleshooting.
  4. Veldu það sem passar best við vandamálið.

Þú getur meðal annars valið:

My device won’t connect
Ef eitt tæki nær ekki að tengjast WiFi.

My internet connection drops
Ef tengingin dettur reglulega út.

My internet is slow
Ef netið er hægt eða virkar illa.

My internet is offline
Ef netið er alveg niðri.

My eero device’s light is red
Ef eero tæki sýnir rautt ljós.

5. Ef netið kemur ekki aftur upp

Ef netið kemur ekki aftur upp eftir endurræsingu skaltu athuga:

  • hvort eero tækið sé í rafmagni
  • hvort netsnúra sé vel tengd
  • hvort ljósleiðarabox eða netbúnaður sé í lagi
  • hvort fleiri tæki á heimilinu séu án internets

Ef eero tækið er enn offline eða ljósið er rautt eftir þessi skref skaltu hafa samband við þjónustuver Nova.

Var þessi grein gagnleg?
0 af 0 fannst þessi grein gagnleg